Íslenska ungmennalandsliðið í keilu lauk um helgina keppni á Youth Triple Crown 2026 sem fram fór í Ayr í Skotlandi. Íslensku keppendurnir stóðu sig vel á mótinu og fengu dýrmæta reynslu í keppni við öflug ungmennalandslið frá hinum þátttökuþjóðunum.
Íslenski hópurinn var fjölmennur að þessu sinni en alls tóku 14 íslensk ungmenni þátt í mótinu. Keppt var í flokkum U16 og U19 í einstaklingskeppni, tvímenningi, þrímenningi, blönduðum tvímenningi og liðakeppni.
Í U19 flokki stúlkna kepptu Nína Rut Magnúsdóttir og Særós Erla Jóhönnudóttir. Í U16 flokki stúlkna voru það Alexandra Erla Guðjónsdóttir, Bára Líf Gunnarsdóttir, Hannah Corella Rosento og Dagbjört Ósk Valdimarsdóttir.
Í U19 flokki pilta kepptu Ásgeir Karl Gústafsson, Evan Julburom, Matthías Leó Sigurðsson og Tristan Máni Nínuson. Í U16 flokki pilta kepptu Haukur Leó Ólafsson, Óskar Ingi Ólafsson, Svavar Steinn Guðjónsson og Þorgils Lárus Davíðsson.
Íslensku ungmennin nældu sér í fjölmörg verðlaun í öllum flokkum á mótinu. Þá vann U16 stúlknaliðið heildar stigakeppnina í sínum flokki. Samanlagt skilaði þessi árangur Íslandi 2. sæti í heildarstigakeppni mótsins. Nánari upplýsingar um einstök verðlaun sem og myndir frá mótinu má nálgast á facebook og instagram síðum KLÍ.
Þjálfarar íslenska hópsins voru Adam Pawel Blaszczak og Magnús Sigurjón Guðmundsson og liðsstjóri var Halldóra Björk Þórarinsdóttir.

Keilusamband Íslands óskar öllum keppendum til hamingju með frammistöðuna og þakkar jafnframt þjálfurum, liðsstjóra og öðrum sem komu að ferðinni fyrir þeirra framlag.
Framtíðin er björt hjá ungmennum Íslands í keilu og verður spennandi að fylgjast með þessum efnilega hópi í verkefnum næstu ára.

