Keilan verður á RIG 2027

Facebook
Twitter

Vegna frétta um að Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir / Reykjavik International Games (RIG) 2027 falli niður vegna niðurskurðar fjármagns frá Reykjavíkurborg til Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR) vill Keilusamband Íslands (KLÍ) koma eftirfarandi á framfæri.

Undirbúningur KLÍ fyrir RIG 2027 hefur staðið yfir í marga mánuði. Meðal annars er búið að tryggja þátttöku sterkra erlendra keppenda og gera samninga við ýmsa aðila um framkvæmd mótsins. Það er það ákvörðun KLÍ að halda til streitu að keilumóti RIG 2027 fari fram dagana 16-24 janúar. Mótið er meðal annars sem fyrr auglýst sem hluti af Evrópumótaröð keilunnar hjá European Bowling Federation fyrir veturinn 2026 til 2027. Því er um marga samninga að ræða sem búið er að skrifa undir og koma í framkvæmd sem erfitt er að vinda ofan af.

Það hryggir KLÍ að fjármagn til þessara frábæru íþróttahátíðar sem RIG er sé af skornum skammti. RIG er og hefur verið ein mesta lyftistöng íþrótta hér í höfuðborginni og mikið um að vera þegar það mót er í gangi.

KLÍ skorar á þá opinberu aðila, sem hafa hingað til stutt með myndarlegum hætti við þessa íþróttahátíð, að skilja ekki sérsambönd og mótshaldara innan RIG fjölskyldunnar eftir með fyrirséðan kostnað sem af mótahaldinu hlýst. Slíkt gerir rekstur íþróttafélaga enn verri sem eiga þó mörg  á brattann að sækja í þeim efnum.

 

Nýjustu fréttirnar