Góður árangur landsliðsins á IBF World Cup

Facebook
Twitter

Heimsbikarmótinu í keilu, IBF World Cup 2026, lauk í München í Þýskalandi 21. október. Ísland átti bæði karla- og kvennalandslið á mótinu og stóðu íslensku keilararnir sig vel í keppni við sterka andstæðinga víðs vegar að úr heiminum.

Karlalandsliðið í 16 liða úrslit

Karlalandslið Íslands náði góðum árangri í liðakeppni mótsins og tryggði sér sæti í 16 liða úrslitum. Þar mætti íslenska liðið Kanada í útsláttarkeppni þar sem leikið var eftir svokölluðu Baker-fyrirkomulagi. Íslenska liðið hóf viðureignina vel og vann fyrsta leikinn en Kanada náði hins vegar að vinna næstu þrjá leiki og þar með viðureignina 3–1.

Þá endaði karlalandsliðið í 14. sæti í stigahluta einstaklingskeppninnar þar sem keppendur safna stigum fyrir liðið með sigrum í einstaklingsviðureignum.

Karlalandslið Íslands skipuðu Arnar Davíð Jónsson, Hafþór Harðarson, Ísak Birkir Sævarsson og Mikael Aron Vilhelmsson. Aðalþjálfari landsliðsins er Peter Ljung og aðstoðarþjálfari er Skúli Freyr Sigurðsson.

Arnar Davíð meðal 16 bestu í einstaklingskeppni

Í einstaklingskeppni karla náðu Arnar Davíð og Mikael Aron þeim glæsilega árangri að komast í 32 manna úrslit.

Arnar Davíð hélt áfram góðri frammistöðu sinni og sigraði Simon Hrušovský frá Slóvakíu 2–0 í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar. Þar með tryggði hann sér sæti meðal 16 bestu keppenda mótsins. Í næstu umferð mætti hann Mathijs Beverdam frá Hollandi og tapaði naumlega 1–2.

Mikael Aron, sem er aðeins 19 ára gamall, vann alla sína 11 leiki í riðlakeppninni og komst með glæsilegum hætti áfram í 32 manna úrslit. Þar mætti hann Keith Mark frá Hong Kong og tapaði 0–2.

Árangur þeirra beggja er sérstaklega ánægjulegur í ljósi þess hversu fjölmennt og sterkt mótið var.

Kvennalandsliðið í keppni við sterkar þjóðir

Kvennalandslið Íslands var einnig á meðal þátttökuþjóða á World Cup. Liðið skipuðu Alexandra Erla Guðjónsdóttir, Bára Líf Gunnarsdóttir, Marika Katarina Lönnroth og Steinunn Inga Guðmundsdóttir. Þjálfarar liðsins eru þeir Adam Pawel Blaszczak og Magnús Sigurjón Guðmundsson.

Íslensku konurnar öttu kappi við öflugar keiluþjóðir, bæði í einstaklingskeppni og liðakeppni, og fengu mikilvæga reynslu á alþjóðlegum vettvangi. Þá enduðu þær í 20. sæti í stigahluta einstaklingskeppninnar þar sem keppendur safna stigum fyrir liðið með sigrum í einstaklingskeppninni.

Danmörk og Frakkland sigruðu í liðakeppni – ungir keilarar fögnuðu sigri í einstaklingskeppninni

Í liðakeppni kvenna fór Danmörk með sigur af hólmi eftir 3-2 sigur á Singapúr í úrslitum. Frakkland tryggði sér sigur í liðakeppni karla eftir úrslitaviðureign gegn Ástralíu sem lauk 3–2. Bandaríkin og Malasía deildu svo þriðja sætinu bæði í liðkeppni karla og kvenna.

Í kvennaflokki vann hin 16 ára gamla Manon Clément frá Frakklandi glæsilegan sigur á Natasha Roslan frá Malasíu. Clément varð þar með yngsti sigurvegari í sögu mótsins. Í einstaklingskeppni karla stóð hinn 18 ára Jovi Ma frá Hong Kong uppi sem sigurvegari eftir sigur á Frakkanum Grégori Rius.

Frakkar fóru því heim með tvenn gullverðlaun, í liðakeppni karla og einstaklingskeppni kvenna, en árangur hinna ungu keilara vakti sérstaka athygli á mótinu.

Keilusamband Íslands þakkar öllum keppendum og þjálfurum fyrir þeirra framlag og óskar íslenska hópnum til hamingju með árangurinn á mótinu.

Nánari upplýsingar um úrslit mótsins má nálgast á heimasíðu þess.

Nýjustu fréttirnar