Arnar Davíð einnig í 32 manna úrslit á World Cup!

Facebook
Twitter

Frábær árangur íslensku keilaranna heldur áfram á IBF World Cup 2026 í München í Þýskalandi. Arnar Davíð Jónsson hefur nú einnig tryggt sér sæti í 32 manna úrslitum í einstaklingskeppni karla, en í fyrradag tryggði Mikael Aron Vilhelmsson sér sæti í sömu úrslitakeppni.

Þar með eiga Íslendingar tvo keppendur meðal 32 efstu í einstaklingskeppni karla á þessu sterka alþjóðlega móti, þar sem 192 keppendur frá 48 þjóðum taka þátt.

Útsláttarkeppnin fer fram á morgun, sunnudaginn 18. október. Þar er leikið maður á móti manni og þarf að vinna tvær af þremur seríum til að komast áfram. Sigurvegararnir halda áfram í 16 manna úrslit og síðan tekur við barátta um sæti í átta manna úrslitum, undanúrslitum og úrslitaleik.

Þetta er glæsilegur árangur hjá Arnari Davíð og Mikael Aroni og verður spennandi að fylgjast með þeim í úrslitakeppninni á morgun.

Áfram Ísland!

Nýjustu fréttirnar