Mikael Aron kominn í 32 manna úrslit í World Cup Munchen!

Facebook
Twitter

Mikael Aron Vilhelmsson hefur tryggt sér sæti í 32 manna úrslitum í einstaklingskeppni karla á IBF World Cup 2026 sem nú fer fram í Munchen í Þýskalandi. Frábær árangur hjá Mikael sem er þar með kominn áfram í útsláttarkeppni meðal bestu keppenda mótsins. Mikael Aron er aðeins 19 ára og því frábær árangur að vera komin á þennan stað í keppninni.

Keppnisfyrirkomulagið á World Cup er með nokkuð sérstökum hætti en í karlaflokki eru 192 keppendur frá 48 löndum. Í einstaklingskeppni karla er keppendum skipt í 16 riðla með 12 keppendum í hverjum riðli. Allir keppa við alla í sínum riðli, samtals 11 leiki, þar sem þrjú stig fást fyrir sigur og eitt fyrir jafntefli. Tveir efstu keppendurnir úr hverjum riðli tryggja sér sæti í 32 manna úrslitum.

Mikael Aron keppti í riðli C1, vann alla sína 11 leiki og tryggði sér áframhaldandi þátttöku með glæsilegri frammistöðu.

Næst tekur við útsláttarkeppni sunnudaginn 18. október. Þar er leikið maður á móti manni og þarf að vinna tvær af þremur seríum til að komast áfram. Sigurvegararnir halda áfram í 16 manna úrslit, síðan átta manna úrslit, undanúrslit og að lokum úrslitaleikinn. Allir þessir leikir fara fram á sunnudaginn.

KLÍ óskar Mikael Aroni innilega til hamingju með árangurinn og góðs gengis í úrslitakeppninni!

Áfram Ísland!

Nýjustu fréttirnar