Íslendingar gera það gott á Seniors Tripple Crown 2026

Facebook
Twitter

Nú um helgina fór fram Öldungamót 50+  Senior Tripple Crown en keppt var í Bromborough Bowl keilusalnum rétt við Liverpool. Mótið að þessu sinni haldið af velska keilusambandinu og áttu auk heimamanna lið Englands, Skotlands, Írlands og Íslands fulltrúa í keppninni.

Ísland sendi alls 12 keppendur út eða 6 í karla- og 6 í kvennaflokki auk þess sem Guðmundur Sigurðsson ÍA fór sem þjálfari hópsins.

Gull og brons í parakeppni

Þau Freyr Bragason KFR og Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR gerðu sér lítið fyrir og unnu til bronsverðlauna í parakeppninni. Ekki nóg með það þá náðu hjónin Þórarinn Már Þorbjörnsson og Bára Ágústsdóttir bronsverðlaunum í þeirri keppni. Glæsilegur árangur þar.

Brons í einstaklingskeppni karla

Freyr Bragason átti heilt yfir nokkuð gott mót og auk gullverðlauna í parakeppninni náði hann þriðja sætinu í einstaklingskeppni karla en hann vann þá keppni reyndar í fyrra svo hann er kominn í góða áskrift með verðlaun í þeirri keppni. Linda Hrönn náði 4. sæti í einstaklingskeppni kvenna.

Sjá má myndir og ýmsar stöður úr mótinu á Fésbókarsíðu velska sambandsins

Frétt um landsliðshópinn og ferðina út.

Nýjustu fréttirnar