Öldungalandslið Íslands (50+) er nú á leið til Englands þar sem liðið tekur þátt í Senior Triple Crown dagana 17 – 19. apríl. Þar munu þau keppa sem einstaklingar, pör og lið. KLÍ óskar þeim góðs gengis en upplýsingar og úrslit má nálgast á heimasíðu mótsins.
Lið Íslands skipa:
Konur:
Linda Hrönn Magnúsdóttir
Sigríður Klemensdóttir
Guðný Gunnarsdóttir
Bára Ágústsdóttir
Helga Sigurðardóttir
Halldóra Íris Ingvarsdóttir
Karlar:
Ásgeir Henningsson
Bjarki Sigurðsson
Freyr Bragason
Hannes Jón Hannesson
Matthías Helgi Júlíusson
Þórarinn Már Þorbjörnsson
Þjálfari landsliðsins er Guðmundur Sigurðsson.




