33. þing KLÍ 2026

Facebook
Twitter

Í dag fór fram 33. þing KLÍ en það var að þessu sinni haldið í boði Íþróttafélags Asparinnar í Sigtúni í Reykjavík. Var vel mætt á þing og alls 23 fulltrúar aðildarfélaga sambandsins skráðir til þing. Þinggerð sem og þingskjöl má finna hér á vef okkar.

Sem fyrr var þingi stýrt röggsamlega af Hafseini Pálssyni frá Framkvæmdastjórn ÍSÍ. Er þetta í 31. sinn sem Hafsteinn stýrir þingi og kann Keilusambandið honum bestu þakkir fyrir röggsama stjórnun nú sem fyrr. Valgerður Rún Benediktsdóttir formaður KLÍ veitti Hafsteini að þessu sinni Gullmerki KLÍ fyrir ómetanlega aðstoð hans í gegn um sögu sambandsins.

Fallnir félagar

Nýlega bárust fréttir þess eðlis að keilusamfélagið sæi á eftir tveimur félögum. Þórður Guðjón Kjartansson lést 22. mars s.l. Þórður rak á sínum tíma Keiluland í Garðabæ og flutti þá starfsemi síðar í Mjódd sem þar var rekið um langt árabil. Keilusamfélagið á Þórði mikið að þakka fyrir uppbyggingu keilunnar á Íslandi.

Þann 24. apríl lést svo Hreinn Rafnar Magnússon liðsmaður ÍR-Keila.is. Hreinn Rafnar æfði keilu með vinnufélögum sínum hjá Icelandair og gekk loks til liðs við deildarlið þrátt fyrir að vera kominn á efri ár. Var gott dæmi um það að við getum alltaf byrjað í keilu, sama hvað við erum gömul.

Bað Valgerður þingheim að rísa úr sætum og minnast fallinna félaga sem hvor fyrir sig lagði mark sitt á sögu okkar.

Hefðbundin þingstörf

Þingið hélt áfram með hefðbundnum störfum, skýrsla stjórnar, reikningar sambandsins og fjárhagsáætlun voru fram lögð og umræður sköpuðust um þau mál.

Á þingi var samkvæmt venju veitt Afreksmerki KLÍ sem er gert þegar íslenskir keppendur vinna til verðlauna á stórmótum erlendis.

Fyrst voru þær Jóna Gunnarsdóttir KFR, Bára Ágústsdóttir ÍR, Guðný Gunnarsdóttir ÍR og Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR sæmdar Afreksmerki KLÍ en þær unnu til bronsverðlauna í liðakeppni á HM öldunga 65+ á liðnu tímabili. Einnig fengu þeir félagar Ásgeri Karl Gústafsson KFR og Tristan Máni Nínuson Afreksmerki KLÍ fyrir að hafa náð brons verðlaunum í tvímenningi á EM U18 nú í vor.

Auk þess vann Guðný Gunnarsdóttir bronsverðlaun á fyrsta Evrópumóti 65 ára og eldri í einstaklingskeppninni í febrúar s.l.

 

 

 

 

Auk þess sæmdi Keilusambandið hjónin Laufey Sigurðardóttur og Bjarka Sigurðsson Silfurmerki KLÍ fyrir ómetanleg störf þeirra í þágu fatlaðra keilara en þau stýra starfi Asparinnar í keilunni.

Fyrir þing lá að ræða um Stefnumótunarvinnu sem stjórn sambandsins vill fara í, var samþykkt af þingi að stjórn sambandsins héldi þeirri vinnu áfram. Einnig var tillaga um breytingar á keppnisdagskrá þess eðlis að dreifa meira úr Íslandsmótum sem sambandið heldur á hverju keppnistímabili. Var henni vísað til Mótanefndar. Loks var Afreksstefna sambandsins samþykkt með tillögu um skoðun varðandi meðaltals viðmið hennar.

Kosningar til stjórnarsetu

Ýmsar spurningar komu fram undir liðnum önnur mál en að þeim loknum var gengið til kosninga. Fyrir lág að kjósa þyrfti um tvo aðalmenn til tveggja ára sem og þrjá varamenn til eins árs skv. lögum.

Fram komu þrjú framboð til aðalmanna og þurfti því að kjósa. Fór það svo að Hafdís Pála Jónasdóttir úr KFR og Sigurður Jónas Eggertsson úr Ösp voru kjörin til stjórnarsetu.

Helga Hákonardóttir Ösp, Böðvar Már Böðvarsson ÍR og Katrín Fjóla Bragadóttir KFR voru síðan kjörin í þessari röð sem varamenn.

Í lokaávarpi þings sagði Valgerður Rún að félög gætu óhikað gengið til skráninga á komandi keppnistímabili þó óvisst er um hvernig dagkrá mun líta út. Hét hún því að stjórn KLÍ muni hverfa frá ákvæðum reglugerða kjósi lið á endanum að draga sig frá keppni samræmist dagkrá ekki þörfum þeirra.

Þingi var slitið laust fyrir kl. 16

Nýjustu fréttirnar