Í gær lauk undanúrslitum og fyrri umspils umferðinni fyrir karladeildir sem og umspili fyrir sæti í 1. deild kvenna. Ljóst er því hvaða lið leika um Íslandsmeistaratitil deildarliða í 1. deild karla, hvaða lið komst upp í 1. deild kvenna og hvaða lið hald áfram í umspili um sæti í karladeildunum.
Umspil um sæti í 1. deild kvenna
Hér áttust við lið ÍR-Píurnar sem enduðu í næst neðsta sæti 1. deildar kvenna og ÍR-Meyjur sem enduðu í 2. sæti 2. deildar.
ÍR-Píurnar áttu fyrst heimaleik sem leikinn var á mánudaginn og endaði sá leikur með sigri þeirra 10,5 gegn 3,5. Þar spiluðu þær Bára Líf 551 og Hannah Corella 510 best á meðan Ágústa Kristín átti bestu seríu Skaga-kvenna 498.
Seinni leikurinn fór fram á Skaganum í gærkvöldi og þá snerust leikar við, ÍA-Meyjur fóru með sigur af hólmi 12 gegn 2 og unnu því umspilið með samtals 15,5 stigum gegn 12,5. Þær leika því í 1. deild á næsta tímabili.
Undanúrslit í 1. deild karla
Hér áttust við efstu fjögur liðin eftir að almennri deildarkeppni lauk. ÍR-PLS sem varð deildarmeistari mætti KFR-Lærlingum sem urðu í 4. sætinu. ÍA sem varð í 2. sæti mætti síðan ÍR-L sem varð í því þriðja eftir almenna deildarkeppni.
ÍR-PLS vann fyrri viðureignina 13 gegn 1 og ÍR-L sótti sigur upp á Skaga 12 gegn 2.
Í seinni viðureigninni náðu KFR-Lærlingar aðeins að klóra í bakkann og sigruðu með 8 stigum gegn 4 en það nægði þeim ekki og því ÍR-PLS komið í úrslit með alls 15 stig gegn 9. ÍR-L hélt uppteknum hætti og lagði ÍA í Egilshöllinni aftur með 12 stigum gegn 2 og því alls 24 stig gegn 4.
Það verða því ÍR liðin ÍR-PLS og ÍR-L sem leika um Íslandsmeistaratitilinn í næstu viku. Á sama tíma fer fram úrslitaviðureign í 1. deild kvenna þar sem KFR-Valkyrjur og ÍR-TT eigast við.
Umspil um sæti í 1. deild karla
Þar sem fækkað er í 1. og 2. deild karla á næsta tímabili fer umspils-kapallinn í gang. Í fyrstu umferðinni áttust við ÍR-Land sem varð í næst neðsta sæti 1. deildar við ÍR-Öðlinga sem urðu í 2. sæti í 2. deild.
Fyrri viðureign fór þannig að ÍR-Land hafði sigur 9 stig gegn 5 og því þurftu Öðlingarnir að bíta í skjaldarendur í seinni leiknum. Sem og þeir gerði því þeir unnu þá viðureign 10 stig gegn 4 og því viðureignina samtals 15 stig gegn 13. ÍR-Land spilar því í 2. deild á næsta tímabili en ÍR-Öðlingar eiga næstu viðureign við KFR-Grænu töffarana sem urðu í 9. sæti 1. deildar í ár.
Umspil um sæti í 2. deild karla
Líkt og með umspil í 1. deild karla er líka umspil um sæti í 2. deildinni. Í fyrstu umferð áttust við lið ÍA-C sem varð í næst neðsta sæti deildarinnar og ÍR-Splitturnar þrjár sem urðu í 2. sæti 3. deildar.
Fyrri leikurinn er búinn sem fram fór á mánudaginn en seinni leikurinn er í kvöld upp á Skaga þar sem ekki er hægt að koma tveim leikjum fyrir á sama tíma þar og stúlkurnar voru að klára sinn leik í gær.
ÍR-Splitturnar þrjár unnu fyrri leikinn með 10 stigum gegn 4 en þær þurfa 4,5 stig í viðbót til að halda áfram í umspilinu, annars fer lið ÍA-C í næstu umferð sem verður á móti liði ÍR-Blikk.
Það er því enn ekki ljóst hverjir kljást í þeirri viðureign og spennan töluverð.
Úrslitakeppni Íslandsmeirarar 1. deildar – Breytt dagskrá
Af óviðráðanlegum orsökum þarf að hliðra til áður auglýstri dagskrá úrslita 1. deildar karla og kvenna sem og síðari umferð umspilsviðureigna.
Leikið verður eins og hér segir:
- sunnudaginn 26.04. kl. 19:00 – 1. umferð úrslita og seinna umspil
- mánudaginn 27.04. kl. 19:00 – 2. umferð úrslita og seinna umspil
- miðvikudaginn 29.04. kl. 19:00 – 3. umferð úrslita




