Skráning eldri liða fyrir tímabilið 2026-2027

Facebook
Twitter

Eins og reglur kveða á um þarf að endurskrá eldri lið til þátttöku fyrir 15. maí hvert ár. Ábyrgð eftirfylgni er í höndum félaganna að skrá lið sín. Búið er að opna á skráningar, sjá hér.

Breytingar á dagskrá 2026 til 2027

Á næsta tímabili verða breytingar á leiktíma í Keiluhöllinni Egilshöll. Snúa þær að því að Reykjavíkurfélögin fá ekki eins mikið af brautum á mánudögum og þriðjudögum eins og verið hefur. Því er ljóst að deildarkeppni verður leikin, auk mánudags og þriðjudagskvöld, á laugardags- og sunnudagsmorgnum á komandi tímabili. Félög og lið er hér með gert viðvart um þá breytingu.

Reynt verður eins og kostur er að dreifa því milli deilda hvernig dagskrá raðast niður á deildir og leikdaga. Hve mikið mun flæða á helgar ræðst því eðlilega af því hver endanlegur fjöldi liða verður í deildarkeppninni á komandi tímabili.

Nýjustu fréttirnar