Nú um helgina fór fram seinasta mótið á Hammer Youth Tour sem samanstendur af fjórum mótum sem fram fara í Svíþjóð og Danmörku. Keppt er í fjórum flokkum, 14 ára og yngri, 15-18 ára stelpur, 15-18 ára strákar og 19-25 ára.
Seinasta stoppið á túrnum fór fram í Nässjö í Svíþjóð en það er einmitt heimavöllur sænsku meistaranna í Team Clan og þar má einnig finna keiluskólann þar sem margir efnilegustu og bestu unglingar Svíþjóðar stunda nám og æfa keilu meðfram náminu.
Það var því ljóst að samkeppnin yrði hörð en Ísak Birkir Sævarsson var mættur í elsta flokkinn á meðan Svavar Steinn Guðjónsson tók þátt í flokki 15-18 ára stráka og Alexandra Erla Guðjónsdóttir var meðal keppenda í 14 ára og yngri.
Alexandra komst því miður ekki áfram en hún endaði í 13.sæti eftir forkeppni en efstu 12 í öllum flokkum komust áfram.
Svavar Steinn var í sterkasta flokknum og tókst að komast áfram með persónulegu meti í 6 leikjum, 1391 og var síðastur áfram en meðal annars voru allir strákarnir úr sænska unglingalandsliðinu í úrslitunum ásamt þremur úr danska liðinu sem vann flest gullverðlaunin á EM á dögunum.
Ísak Birkir sýndi enga glansspilamennsku í forkeppninni en gerði nóg og endaði í 9.sæti í forkeppninni með 1282.
Fyrirkomulagið á úrslitadaginn var á þann veginn að þeir 12 sem komust áfram var splittað í tvo hópa og spilaðir voru 3 leikir og eftir það féllu tveir lægstu út.
Því miður reyndist það raunin fyrir Svavar Stein sem átti erfitt uppdráttar í sínum riðli og spilaði 578 í þremur leikjum en endaði þó aðeins 24 pinnum á eftir fjórða sætinu. Samt sem áður frábær árangur hjá Svavari sem var langyngstur í úrslitunum.
Ísak Birkir fór hinsvegar vel af stað og setti tóninn í fyrsta leik með 259, hann fylgdi því eftir með 223 og 233 og var annar eftir þrjá leiki. Eftir það spiluðu þeir fjórir sem eftir voru annan leik þar sem lægsti féll út. Ísak bætti við 239 í leik 4 og var áfram í öðru sæti. Þá bættist við einn leikur í viðbót þar sem aftur lægsti datt út. Ísak spilaði 210 í fimmta og endaði með 1164 í fimm leikjum og komst þar með áfram í fjögurra manna úrslit.
Þar spiluðu tveir efstu úr báðum riðlum saman og byrjuðu á núlli. Í úrslitunum voru þeir Ísak Birkir og liðsfélagi hans og íslandsvinur, Jonathan Johansson ásamt þeim Robin Ilhammar, nýkrýndur sænskur meistari og Evrópumeistari frá seinasta EM og liðsfélagi hans og fastamaður í Team Clan, Alexander Tigerstrand. Alexander og Robin báðir á heimavelli.
Fyrirkomulagið í fjögurra manna úrslitunum var svipað, einn leikur og lægsta skorið er úr leik, þrír áfram sem spila aftur með skorið með sér og aftur lægsta skorið út. Tveir eftir og einn leikur enn og hærra total eftir þrjá er sigurvegarinn.
Eftir fyrsta leik datt Ilhammar óvænt út með 223, Jonathan 228, Ísak 254 og Alexander 267.
Eftir það datt allt spil niður hjá Alexander sem spilaði 171 í leik 2 (samtals 438) á meðan Ísak spilaði 219 (473) og Jonathan 236 (464).
Það voru því Höganäs BC strákarnir sem spiluðu uppá sigurinn og þar reyndist Ísak sterkari, hann endaði á 204 leik og samtals 677 á meðan Jonathan henti í 178 og samtals 642.
Frábær úrslitadagur hjá Ísaki og góð fyrirheit en framundan hjá honum er umspil um sæti í efstu deild með liði sínu, Höganäs BC sem fram fer fyrstu helgina í maí.




