Íslendingafélagið Höganäs BC tryggði sér um helgina sæti í efstu deild karla- og kvenna í Svíþjóð í fyrsta sinn í sögu félagsins en margir Íslendingar spiluðu með liðunum.
Karlaliðið hóf helgina á undanúrslitaviðureign gegn Falkenberg í Ängelholm. Bæði lið unnu sitthvora viðureignina til að byrja sem þýddi að liðin þurftu að leika odda viðureign upp á það hvort liðið færi í úrslitin á sunnudeginum.
Liðin sýndu ekki sínar bestu hliðar en það var mikið stress og taugar í báðum liðum og jafnt á flestum pörum. Staðan var 5-5 eftir tvo leiki og þegar stutt var eftir af leik þrjú leiddu Falkenberg á þremur af fjórum pörum og voru með heildina líka en þá gerðist eitthvað ótrúlegt. Höganäs ásamt mögnuðum stuðningi náði að snúa leiknum sér í vil og breyta stöðunni úr 1-4 í 5-0 og staðan því orðin 10-5 og ljóst að Höganäs þyrfti bara að vinna eitt par af fjórum í seinasta leiknum. Besti leikmaður Höganäs þessa helgina, Anton Olson ætlaði sér aldrei neitt annað en sigur og hann byrjaði seinasta leikinn á átta fellum í röð og var á endanum lykillinn að sigri liðsins.
Þá komum við að sunnudeginum, nýr dagur, nýr keilusalur og nýr andstæðingur! Tegnér frá Säffle var andstæðingurinn, besta liðið í MellanAllsvenskan sem vann 20 af 22 leikjum sínum í ár en liðin mættust í Kungälv sem er rétt fyrir ofan Gautaborg. Brautirnar í Kungälv virkuðu auðveldari og spilamennskan var töluvert hærri en áfram sama spennan. Fyrir seinasta leikinn í fyrstu viðureigninni var 8-7 fyrir Tegnér en fyrir seinasta ramma seinasta leiksins áttu Höganäs möguleika á því að vinna leikinn en því miður fékk Mattias Möller glennu sem varð til þess að stigið tapaðist og leikurinn endaði því 10-10. Það var því ljóst að sigurliðið í viðureign tvö myndi vinna einvígið og komast upp.
Þar sýndu Höganäs enn og aftur styrk sinn og einfaldlega keyrðu yfir andstæðinginn, staðan var 8-2 eftir tvo leiki og útlitið gott. En oft er erfitt að komast yfir endalínuna þegar stutt er í mark og það reyndist raunin. Tegnér byrjaði leik 3 mjög vel og leiddi framan af á öllum pörum nema einu en jafnt og þétt tókst Höganäs að kroppa niður forskot Tegnér og þeir fóru að gera mistök. Höganäs tókst að snúa heildinni sér í vil og tryggja sér sigurinn á einu parinu snemma og þegar uppi var staðið þurfti Guðlaugur Valgeirsson að feykja sjöunni til að loka leiknum, sem og hann gerði! 11-4 sigur staðreynd og Höganäs er því komið upp í Elitserien í fyrsta sinn! Guðlaugur Valgeirsson, Ísak Birkir Sævarsson og Mikael Aron Vilhelmsson spiluðu allir með Höganäs liðinu, alla leikina um helgina og Skúli Freyr Sigurðsson var þjálfari niðrí gryfju.
Kvennaliðið mætti Sundbybergs í Nässjö á laugardaginn en Olivia Lindén og Alexandra Guðjónsdóttir voru báðar í liðinu. Það var mikið um taugatitring og spennu í liðunum enda mikið undir og erfiðar aðstæður en bæði lið ekki vön að spila í stuttum burði. Mörg brautarpör voru jöfn en Höganäs tókst á endanum að vinna naumlega í fyrstu viðureigninni að stórum hluta þökk sé Alexöndru og brautarfélaga hennar, Maju Andersson en þær unnu stigið sitt í seinasta leiknum með 3 pinnum og viðureignin endaði með 11-9 sigri Höganäs.
Í viðureign númer tvö var svipað upp á teningnum en liðin voru mjög jöfn og margir leikir sem réðust á aðeins 10-20 pinnum. Aftur var það Höganäs sem dró lengsta stráið en þær leiddu 9-6 fyrir seinasta leikinn sem þýddi að Sundbybergs þurfti að vinna öll stigin í seinasta leik. Þrátt fyrir hetjulega baráttu reyndist það of mikið fyrir Sundbybergs og Höganäs vann viðureignina 13-7 og eru því einnig komnar í Elitserien, magnað afrek en kvennaliðið var neðst í division 1 (neðstu deild kvk) fyrir aðeins 7 árum síðan! Alexandra stóð vel fyrir sínu en í fyrri viðureigninni vann hún og liðsfélagi hennar alla 4 leiki sína og í seinni viðureigninni var hún næstbest í liðinu með 771 í 4 leikjum. Olivia átti erfitt uppdráttar skorlega en hún og liðsfélagi hennar Sandra Gustafsson unnu alla fjóra leikina sína í seinni viðureigninni.




