Íslandsmót para 2021

Facebook
Twitter

Íslandsmót para verður haldið í Keiluhöllinni Egilshöll helgina 16 & 17.okt 2021,
sjá reglugerð um Íslandsmót para
Skráning hér

 

Vinsamlegast skráið nöfn beggja leikmanna:

Annar aðili sem first name og hinn sem last name.t.d:

  • First name: Jóna Jónsdóttir
  • Last name: Jón Jónsson

Forkeppni:

Laugardaginn 16.okt kl. 09:00

Spilaðir eru 6 leikir.

Efstu 8 pörin halda áfram í milliriðil.

Verð í forkeppni kr. 12.000,- pr. par

Milliriðill :

Sunnudaginn 17.okt kl. 09:00

Spilaðir eru 6 leikir.

Verð í milliriðil kr. 14.000- pr. par

Efstu 2. pörin leika til úrslita strax að loknum milliriðli.

Úrslit – strax að loknum milliriðli:

Tvö stigahæstu pörin leika síðan til úrslita, það par sem er efst að stigum fyrir úrslit nægir að vinna tvær viðureignir (2 stig) en annað sætið þarf að vinna þrjár (3 stig). Jafnteflis viðureignir skal útkljá með því að pörin kasta einu kasti hvert og ræður samtala parsins úrslitum. Ef enn er jafnt skal kasta aftur og endurtaka þar til úrslit liggja fyrir. Ef jafnt er í síðasta leik skal hver leikmaður kasta einu kasti. Ef enn er jafnt skal kasta öðru kasti og halda þannig áfram þar til úrslit liggja fyrir.

Sigurvegararnir hljóta titilinn „Íslandsmeistarar para 2021″.

Olíuburður er: AIK 2020

Nú verður ekki posi á staðnum. Hægt verður að greiða með pening á staðnum eða að leggja inn á reikning hjá KLÍ og senda staðfestingu greiðslu á [email protected] eða koma með útprentun á kvittun í mótið
Keilusamband Íslands, KLÍ
Kennitala: 460792-21590
Banki: 115-26-010520

Mótanefnd KLÍ
Nefndin áskilur sér rétt til breytinga ef þurfa þykir.

Nýjustu fréttirnar