Íslandsmót einstaklinga 2024 með forgjöf

Íslandsmót einstaklinga með forgjöf 2024 fer fram dagana 3. – 6. febrúar 2024
 

Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur föstudaginn 2. febrúar klukkan 13:00.
Skráning h
ér

Olíuburður í mótinu er:

Reglugerð um mótið er hægt að nálgast hér 

Forkeppni 3. og 4. febrúar 2024 kl 09:00

Verð í forkeppni kr. 15.000
Spilaðir eru 12 leikir í tveimur 6 leikja blokkum.

Forgjöf er 80% af mismun meðaltals og 220, hámark 80 pinnar.
Ekki er hægt að hafa neikvæða forgjöf og sé leikmaður með hærra meðaltal en 220 skal hann hafa 0 í forgjöf. Hámarksskor í einum leik verður aldrei hærra en 300.
Til að hafa þátttökurétt í Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf þarf viðkomandi að hafa meðaltal viðurkennt af KLÍ úr a.m.k. 18 leikjum, annars er forgjöf engin.

12 efstu karlarnir og 12 efstu konurnar halda áfram í milliriðil.

Milliriðill mánudaginn 5.feb kl 19:00

Verð í milliriðil kr. 7.500

12 efstu keppendurnir spila 6 leiki,

6 efstu keppendurnir í karla og kvenna flokk fara áfram í undanúrslit og fylgir skorið úr forkeppninni og milliriðlinum.

Undanúrslit þriðjudaginn 6. febrúar kl 19:00

Verð í undanúrslit kr. 6.250

Allir keppa við alla, einfalda umferð.

Á stigin fyrir leikina bætast bónusstig þannig:

Fyrir sigur í leik fást 20 bónusstig

fyrir jafntefli í leik fást 10 bónusstig

Að loknum þessum leikjum fara 3 efstu keppendurnir í úrslit.

Úrslit spiluð á eftir undanúrslitum

Verð í úrslit kr. 1.250

Úrslit:

Spiluð eru úrslit milli þriggja efstu karla/kvenna

Allir leika einn leik og fellur úr leik sá sem hefur lægsta skorið.

Eftir eru tveir keppendur og leika þeir einn leik til úrslita og fær sigurvegarinn titilinn Íslandsmeistari einstaklinga með forgjöf.

Sé einhversstaðar í úrslitum jafnir leikir sem verða til þess að ekki sé hægt að skera úr um hvort keppandi detti út eða vinni leik skal útkljá leikinn með því að leikmenn kasta einu kasti og sá vinnur sem fellir flestar keilur.

Ef enn er jafnt skal endurtaka þetta þar til úrslit liggja fyrir.

Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur fimmtudaginn 2. febrúar klukkan 13:00.

Mótanefnd KLÍ

Mótanefnd áskilur sér rétt til breytinga ef þurfa þykir.

 

Dregið í 16 liða bikar

Dregið hefur verið í 16 liða úrslitum í bikarkeppni liða 2023-2024.  Í kvenna flokki eru 10 lið skráð til leiks og þurfti því að draga í 2 viðureignir sem eru eftirfarandi.

ÍR-BK  –  ÍR-N    

ÍR-TT  –  ÍR-KK

Í karlaflokki voru dreginn 16 lið og varð niðurstaðan eftirfarandi:

KFR-Grænu Töffararnir  –  ÍR-Broskarlar

ÍR-A  –  ÍA-B

ÍA-C  –  ÍA-W

KFR-Stormsveitin  –  ÍR-PLS

ÍA  –  ÍR-Geirfuglar

ÍR-KLS / KR-B  –  ÍR-NAS

KFR-Lærlingar  –  ÍR-Fagmaður

KFR-Þröstur  –  ÍR-L

Leikirnir verða leiknir þann 11. febrúar kl. 10:00

Keilarar ársins 2023

Arnar Davíð Jónsson og Katrín Fjóla Bragadóttir

 

Arnar Davíð Jónsson           

Arnar Davíð hefur leikið vel á árinu 2023 og varð í 7. sæti evrópsku mótaraðarinnar árið 2023 og tekur þá á EBT masters 2024 en þangað er 8 efstu mönnum mótaraðar fyrra árs boðið.  Á árinu 2022 endaði hann í 7. Sæti á lokamóti mótaraðarinnar eftir að hafa komið inní mótið sem 3.  Arnar Davíð æfir og stundar sína íþrótt að mestu leiti erlendis, en hann er með sænskan þjálfara og leikur með sænsku liði.  Arnar Davíð hefur stundað Keilu íþróttina frá unga aldri og segja má að árið 2023 er eitt af hans bestu árum.  Á arinu 2024 higgs Arnar stefna enn lengra eða á PBA túrinn í USA, sterkustu mótaröð heims í Keilunni, og óskum við Arnari góðs gengis þar.  Arnar Davíð hefur verið góð fyrirmynd ungra og efnilegra keilara.

 

 

Katrín Fjóla Bragadóttir         

Katrín Fjóla hefur átt einstaklega gott ár sem keilari. Á árinu varð hún Íslandsmeistari einstaklinga og lék sem slíkur á Evrópumóti landsmeistar sem fram fór í Berlín í október.  Hún varð einnig Íslandsmeistari í tvímenningi ásamt Ísaki Birki Svævarssyni.  Hún varð Íslandsmeistari og Bikarmeistari með liði sínu KFR-Valkyrjum, en liðið setti einnig nokkur Íslandsmet á árinu.  Um ára bil hefur Katrín Fjóla verið góð fyrirmynd ungra og efnilegra keilara.

 

EBF Academy

Dagana 29. jan. 24 til 10.feb. 24 heldur EBF ýmis námskeið tengd Keilu.  Námskeiðin verða haldin í Kuortane í Finnlandi.  KLÍ býður nú þeim sem hyggjast sækja, Level III námskeið eða alþjóða dómara námskeið, að styrkja viðkomandi fyrir hluta af kostnaði upphæðin fer eftir fjölda umsækjenda.  Í mars 2024 verður haldið Level I námskeið hér á Íslandi og eins verður Level II námskeið haldið í nóvember 2024 einnig hér á íslandi.  Upplýsingar um EBF námskeiðin sem eru í boði má finna hér.  Umsóknir sendist á skrifstofu KLÍ á netfangið [email protected]