Ákveðið hefur verið að fresta Íslandsmóti Félaga, sem átti að vera í kvöld í Öskjuhlíð, vegna veðurs.
Ný dagsetning ákveðin síðar.
Mótanefnd.
Ákveðið hefur verið að fresta Íslandsmóti Félaga, sem átti að vera í kvöld í Öskjuhlíð, vegna veðurs.
Ný dagsetning ákveðin síðar.
Mótanefnd.
Í dag lauk keppni í 5 manna liðum á HM í Abu Dhabi. Kórea, sem spilað hefur frábærlega á mótinu, sigruðu USA í mögnuðum úrslitaleik.
Strákarnir okkar náðu ekki að sýna sínar bestu hliðar í þessum hluta mótsins. Þeir spiluðu á 197 meðaltali og enduðu í 30. sæti.
Það var Skúli sem spilaði best en hann skilaði 206 meðaltali í liðakeppninni.
Þeir hafa nú lokið keppni og eru væntanlegir heim á mánudagskvöld.
Í dag lauk keppni í þrímenning á HM í Abu Dhabi. Alls kepptu 98 þrímenningar um heimsmeistaratitilinn.
Fyrst léku Arnar Davíð, Magnús og Hafþór. Arnar Davíð og Magnús léku vel í dag, Arnar Davíð í harðri keppni um að komast í Masters úrslit mótsins. Hann stóð undir pressunni í dag, spilaði 664 en Magnús 641. Hafþór var í smá vandræðum og endaði í 526. Samtals spiluðu þeir því 1831 og enduðu í 49. sæti.
Í síðasta riðli dagsins spiluðu svo Skúli, Stefán og Arnar Sæbergs. Skúli og Stefán spiluðu fína keilu í dag, Skúli 667 og Stefán 650. Arnar, eins og Hafþór, lenti í vandræðum og spilaði 553. Saman spiluðu þeir 1870 og var Skúli því með hæstu seríu dagsins af Íslendingunum en Stefán hæsta leikinn, 278.
Á morgun verður leikið í 5 manna liðum í lengri olíuburðinum. Byrjunarlið Íslands verður þannig: Magnús, Stefán, Arnar Sæbergs, Hafþór og Arnar Davíð. Skúli spilar svo í liði með sjötta manni frá Írak, Japan, Jórdaníu og Kóreu. Strákarnir hefja leik kl. 10 að íslenskum tíma.
Dagurinn endaði svo með að Danir tryggðu sér heimsmeistaratitilinn með góðum sigri á USA í jöfnum og skemmtilegum leik.
Hið árlega jólamót keiludeildar ÍR verður haldið í Keiluhöllinni Öskjuhlíð helgina 13. til 14. desember n.k. Keppnin er einstaklingskeppni og er keppt í 5 flokkum. Leiknir eru þrír leikir og má endurtaka seríuna ef keppandi vill. Ekki er spilað til úrslita.
Þrjú efstu sætin í hverjum flokki fá glæsilega matarkörfu. Auk þess verður happdrætti með fullt af áhugaverðum vinningum svo allir ættu að fá eitthvað fallegt fyrir jólin.
Sjá nánar auglýsingu
Skráning fer fram hér á netinu.
Á þriðjudag var dregið um hvaða lið þurfa að spila í forkeppni fyrir 8 liða úrslit kvenna í Bikarkeppni liða og er skemmst frá því að segja að lið KFR Eldingar og ÍR BK lentu í þeim happadrætti, þannig að þær munu leika sinn leik þann 8. janúar kl. 19:00 í Öskjuhlíð.
Í dag var leikið í tvímenningi á HM í keilu hér í Abu Dhabi. Leiknir voru 3 riðlar af fjórum.
Íslensku strákarnir léku allir í dag og áttu frábæran dag, engin samt eins og Arnar Davíð sem lék frábæra keilu.
Í þriðja riðli spiluðu Arnar Davíð Jónsson og Magnús Magnússon. Sama léku þeir frábæra keilu en það var Arnar Davíð sem lék virkilega vel. Hann lék 1356 sem eru 226 í meðaltal en Magnús 1240 sem gera 206.67 í meðaltal.
Þegar 99 tvímenningar hafa lokið keppni og aðeins einum riðli er ólokið eru Arnar Davíð og Magnús í 8. sæti í heildina í tvímenningnum sem er frábær staða. Vonandi verður niðurstaðan sú að þeir verði í topp 10. Það kemur ekki í ljós fyrr en á morgun þegar keppni í tvímenning lýkur.
Á morgun á hópurinn hins vegar frí en keppni í þrímenningi hefst á miðvikudag.
Eins og komið hefur fram áður þá komast 24 efstu eftir einstaklings, tvímennings, þrímennings og 5 manna liðakeppni áfram í svo kölluð masters úrslit.
Arnar Davíð er þar í 17. sæti eins og staðan er í dag en aldrei hefur Íslendingur komist í þessi úrslit. Vonandi helur sú spilamennska sem hann hefur sýnt áfram seinni helming mótsins þannig að Ísland eigi í fyrsta skipti mann í þessum úrslitum.
Mótanefnd urðu á þau leiðu mistök að gleyma að draga hjá konunum í 16 liða úrslitum, í ljós kom að það eru 9 lið skráð og því þarf að draga út 2 lið svo hægt sé að fækka niður í 8.
Því hefur verið ákveðið að draga, fyrir leik í kvennadeildunum í Öskjuhlíð þriðjudaginn 9.des. Leikurinn verður svo spilaður 7. eða 8. jan. nema liðin komi sér saman um að spila hann fyrr.
Liðin sem um ræðir eru, KFR Valkyrjur núverandi Bikarmeistarar sem sitja hjá í útdrættinum en hin 8 eru,
ÍR TT, KFR AFTURGÖNGURNAR, ÍR BUFF, ÍR BK, KFR SKUTLURNAR, ÍA, ÞÓRYNJUR og KFR ELDING.
Leikirnir hjá körlunum eru eftirfarandi:
| Lið | Brautir | Leikstaður | Dags. | Tími | ||
| 16 Liða | ||||||
| Þór-Víkingur | – | KFR-JP-Kast | 1-2 | N | sun 11.1.2015 | 11:00 |
| KFR-Þröstur | – | ÍR-S | 5-6 | Ö | fim 11.12.2014 | 19:00 |
| KR-D | – | KR-A | 7-8 | Ö | fim 11.12.2014 | 19:00 |
| ÍR-Gaurar | – | KFR-Stormsveitin | 9-10 | Ö | fim 11.12.2014 | 19:00 |
| KR-B | – | KFR-Lærlingar | 11-12 | Ö | fim 11.12.2014 | 19:00 |
| KR-E | – | ÍA | 1-2 | Ö | ??? | 19:00 |
| ÍR-KLS | – | ÍR-PLS | 11-12 | E | mið 7.1.2015 | 19:00 |
| ÍA-W | – | ÍR-Broskarlar | 2-3 | S | mið 7.1.2015 | 19:00 |
Keppni var að ljúka í fjórða riðli í einstaklingskeppni HM í keilu og léku Arnar Davíð Jónsson og Magnús Magnússson í þeim riðli. Strákarnir áttu ágætis dag og þá sérstaklega Arnar Davíð.
Loka staða okkar manna í einstaklingskeppninni er því þessi:
34 Arnar Davíð Jónsson KFR 1301 216.83
123 Magnús Magnússon ÍR 1211 201,83
134 Hafþór Harðarson ÍR 1203 200,5
135 Arnar Sæbergsson ÍR 1203 200,5
220 Stefán Claessen ÍR 1099 183,17
Á morgun er leikinn tvímenningur og þá er dagskráin þannig:
Stefán og Skúli kl. 5:00 íslendskum tíma
Arnar S og Hafþór kl. 9:30
Arnar Davíð og Magnús kl. 14:00
Einnig er hægt að fá fréttir á Snapchat „Íslenskakeilan“ og á Facebookhópnum „Jákvæð keila“
Keppni hófst í dag á HM í Abu Dhabi. Keppt var í einstaklingskeppni og voru leiknir 3 riðlar af fjórum. Það voru Stefán Claessen og Skúli Freyr Sigurðsson sem hófu keppni fyrstir Íslendinganna. Spilað var í löngum olíuburði, 43 fet.
Þeir byrjuðu ekki vel og voru í raun alla 6 leikina að strögla. Þegar uppi var staðið var Stefán með 1099 eða 183,17 í meðaltal og Skúli með 1067 eða 177,83 í meðaltal.
Seinni partinn spiluðu svo Arnar Sæbergsson og Hafþór Harðarson. Þeir byrjuðu ágætlega en þegar leið á hallaði undan fæti hjá þeim. Báðir náðu þeir þó að spila rétt yfir 200 í meðaltal, báðir spiluðu þeir 1203 sem gerir 200,5 í meðaltal.
Keppni heldur áfram í einstaklingskeppninni í fyrramálið en þá leika Arnar Davíð Jónsson og Magnús Magnússon. Keppni hefst hjá þeim kl. 5:00 að íslenskum tíma.
Engin umferð er í Hjóna- og paramóti KFR næst komandi sunnudag 7. desember. Vegna mistaka í niðurröðun á mótum KFR var umferð sett inn í dagskrá KLÍ. í desember. Biðjumst við velvirðingar á þeim leiðu mistökum. Næsta umferð í Hjóna- og paramótinu er 8. febrúar 2015.