Íslandsmót para 2026

Facebook
Twitter

Íslandsmót para verður haldið í Keiluhöllinni Egilshöll helgina 24. og  25.okt 2026,
sjá reglugerð um Íslandsmót para.
Skráning hér

Vinsamlegast skráið nöfn beggja leikmanna:

Annar aðili er sá sem að skráir sig og er hinn settur inn í sem athugasemd.

Forkeppni:

Laugardaginn 24.okt kl. 09:00

Spilaðir eru 6 leikir.

Efstu 8 pörin halda áfram í milliriðil.

Verð í forkeppni kr. 18.000,- pr. par

Milliriðill :

Sunnudaginn 25.okt kl. 09:00

Spilaðir eru 6 leikir.

Efstu 2. pörin leika til úrslita strax að loknum milliriðli.

Verð í milliriðil i kr. 18.000,- pr. par

Úrslit – strax að loknum milliriðli:

Verð í úrslit kr. 9.000,- pr. par

Tvö stigahæstu pörin leika síðan til úrslita, það par sem er efst að stigum fyrir úrslit nægir að vinna tvær viðureignir (2 stig) en annað sætið þarf að vinna þrjár (3 stig).
Jafnteflis viðureignir skal útkljá með því að pörin kasta einu kasti hvert og ræður samtala parsins úrslitum. Ef enn er jafnt skal kasta aftur og endurtaka þar til úrslit liggja fyrir.
Ef jafnt er í síðasta leik skal hver leikmaður kasta einu kasti.
Ef enn er jafnt skal kasta öðru kasti og halda þannig áfram þar til úrslit liggja fyrir.

Sigurvegararnir hljóta titilinn „Íslandsmeistarar para 2026″.

Mótanefnd KLÍ
Nefndin áskilur sér rétt til breytinga ef þurfa þykir.

Nýjustu fréttirnar