Íslandi boðið sæti í stjórn Tripple Crown

Facebook
Twitter

Á mótinu sem er núna í gang á Tripple Crown (TC), mót A landsliða, fengu íslensku fulltrúarnir upplýsingar um að Íslandi væri boðið að taka sæti í stjórn TC mótaraðarinnar.

TC er mótaröð sem bresku keilusamböndin, England, Skotland og Wales ásamt Írlandi halda árlega. Keppt er í ýmsum aldurflokkum allt frá ungmennum upp í A lið karla og kvenna sem og öldungaflokka. Löndin hafa skipst á að halda mótið eða mótshluta þess.

Íslandi var fyrir nokkrum árum boðið að vera með í mótinu og fyrir fjórum árum ákvað Keilusamband Íslands loks að senda ungmenni á viðkomandi mót. Núna sendir KLÍ fulltrúa á alla mótshluta þess. Er þetta mót kjörið fyrir okkur til að senda þátttakendur á til undirbúnings fyrir Evrópu- og Heimsmeistaramót því þarna er mikil keppni og oftar en ekki mun jafnari en á stóru mótunum.

Eins og segir fengu íslensku fulltrúarnir á mótinu nú á Írlandi formlegt boð um sæti í stjórn. Stjórn KLÍ hefur ákveðið að þiggja það boð. Það er okkur bæði mikill heiður að fá boðið og sönn ánægja að taka þátt í stjórnun þessara móta. Hlutverk stjórnar TC er að halda utan um mótin, reglur og framkvæmd og síðan skiptast löndin á að halda mótið.

Ef allt gengur því upp þá sjáum við fyrir okkur að hér á landi verði þetta mót haldið í náinni framtíð. Væri það mikil lyftistöng fyrir keiluíþróttina enda teljum við þetta vera viðurkenningu og merki um þann stall sem við viljum halda keiluíþróttinni okkar á.

Nýjustu fréttirnar