Skráning í afrekshóp 50+/65+ fyrir tímabilið 2026–2027 Keilusamband Íslands óskar eftir skráningum frá leikmönnum 50+ og 65+ sem vilja gefa kost á sér í afrekshóp fyrir tímabilið 2026–2027. Markmið afrekshópsins er að skapa skipulagt umhverfi fyrir leikmenn sem vilja vinna markvisst að framförum og undirbúningi fyrir verkefni tímabilsins. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku leikmanna í æfingum og öðru skipulögðu starfi hópsins. Fjöldi sæta í afrekshópnum er takmarkaður.
Skráning felur því í sér að leikmaður gefur kost á sér í hópinn en tryggir ekki sæti í honum. Val í afrekshópinn fer fram að loknum skráningarfresti. Skráningarfrestur er til 1. október 2026.
Skráning í afrekshóp 50+/65+ Nánari upplýsingar um fyrirkomulag, æfingar og verkefni verða kynntar þeim leikmönnum sem valdir verða í hópinn. Guðmundur Sigurðsson Landsliðsþjálfari 50+/65+. Skráning er hér.




