Umspilsleikir og úrslitakeppnin fram undan

Facebook
Twitter

Nú þegar deildarkeppninni er lokið og úrslit eru ljós er komið að umspilsleikjum sem og úrslitakeppni í 1. deild karla og kvenna. Eins og búið var að tilkynna í upphafi tímabils verður fækkað til baka í 10 liða deildir í 1. og 2. deild karla sem kallar á breytingu á því hvernig lið færast milli deilda. Málið var kynnt s.l. ágúst í frétt sem sjá má hér.

Umspil um sæti í 1. deild karla

Nú kom það í hlut KR-A að falla beint niður í 2. deild. Í næst neðsta sæti varð lið ÍR-Land og eiga þeir því fyrri umspilsleikinn á móti ÍR-Öðlingar sem urðu í 2. sæti í 2. deild. Sú viðureign fer fram mánudaginn 20. og þriðjudaginn 21. apríl. Sigurvegari þeirra viðureignar keppir síðan við KFR-Grænu töffarana 27. og 28. apríl. Sigurvegari þeirrar viðureignar fær særi í 1. deild næsta tímabil.

Umspil um sæti í 1. deild kvenna

Samkvæmt reglugerðinni um deildarkeppni kvenna skal næst neðsta lið úr 1. deild spila umspil við 2. sætið úr 2. deild og að þessu sinni eru það ÍR-Píurnar úr 1. deildinni sem keppa við ÍA-Meyjur. fer sú viðureign einnig fram 20. og 21. apríl. Fyrri leikurinn fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll en sá seinni upp á Skaga.

Umspil um sæti í 2. deild karla

Það kom í hlut Þór-Víkingar að falla niður í 3. deild. Í næst neðsta sæti varð lið ÍA-C sem leikur þá við 2. sætið úr 3. deildinni sem varð ÍR-Spilitturnar þrjár. Sú viðureign fer sömuleiðis fram dagana 20. og 21. apríl. Sigurvegari þeirrar viðureignar á síðan umspilsleiki við ÍR-Blikk.

Undanúrslit 1. deildar karla

Sömu daga fara fram undanúrslit 1. deildar karla fram en þá keppa deildarmeistararnir ÍR-PLS við KFR-Lærlinga annars vegar og hins vegar ÍA og ÍR-L en sá leikur fer fram upp á skaga.

 

Þessir leikir fara fram eins og áður segir mánudaginn 20. apríl og þriðjudaginn 21. apríl.

Seinni umspilsleikir sem og úrslitaleikir í 1. deild karla og kvenna fara fram 27. til 29. apríl, sjá dagskrá.

Nýjustu fréttirnar