Lokahóf KLÍ 2026

Facebook
Twitter

Laugardaginn 18. apríl voru leiknir síðustu leikirnir í deildarkeppni tímabilsins 2025 – 2026. Þá á eftir að spila til úrslita í efstu deildum karla og kvenna og umspil milli deilda en nánar verður fjallað um þá spennandi keppni síðar.

Samkvæmt venju fór lokahóf KLÍ fram að lokinni deildarkeppni og var það kvennalandslið Íslands sem sá um hófið að þessu sinni sem var einkar glæsilegt og vel heppnað. 

Þá fór fram verðlaunaafhending fyrir hin ýmsu afrek í deildarkeppni tímabilsins og voru þau eftirfarandi:

 

Verðlaun í 3. deild karla

Deildarmeistarar: ÍR-keila.is

2. sæti: ÍR-Splitturnar þrjár

3. sæti: ÍR-NAS

  • Hæsti leikur: Ástþór Ragnar Gautason (ÍR-Splitturnar Þrjár) 253
  • Hæsta sería: Bharat Singh (ÍR-T) 642
  • Hæsta meðaltal: Bharat Singh (ÍR-T) 178,73
  • Fellukóngur: Bharat Singh (ÍR-T) 3,95
  • Stigameistari: Baldur Einarsson (ÍR-Splitturnar Þrjár) 0,90
  • Mestu framfarir: Haukur Guðmundsson (Ösp-Ásar)
  • Stjörnuskjöldur: ÍR-Splitturnar Þrjár 183 Stjörnur
  • Hæsti leikur liðs: ÍR-Splitturnar Þrjár 643
  • Hæsta sería liðs: ÍR-Splitturnar Þrjár 1676
  • Hæsta meðaltal liðs: ÍR-Splitturnar Þrjár 162,73

 

Verðlaun í 2. deild kvenna

Deildarmeistarar: KFR-Afturgöngur

2. sæti: ÍA-Meyjur

3. sæti: ÍR-Skvísur

  • Hæsti leikur: Margrét Björg Jónsdóttir (ÍR-Skvísur) 235
  • Hæsti leikur: Viktoría Hrund Klörudóttir (ÍR-Skvísur) 235
  • Hæsta sería: Margrét Björg Jónsdóttir (ÍR-Skvísur) 595
  • Hæsta meðaltal: Margrét Björg Jónsdóttir (ÍR-Skvísur) 172,56
  • Felludrottning: Margrét Björg Jónsdóttir (ÍR-Skvísur) 3,24
  • Stigameistari: Margrét Björg Jónsdóttir (ÍR-Skvísur) 0,84
  • Mestu framfarir: Jóhanna Þóra Guðbjörnsdóttir (ÍR-KK)
  • Stjörnuskjöldur: KFR-Afturgöngurnar 138 Stjörnur
  • Hæsti leikur liðs: ÍR-Skvísu 612
  • Hæsta sería liðs: ÍR-Skvísur 1643
  • Hæsta meðaltal liðs: KFR-Afturgöngurnar 154,57

 

Verðlaun í 2. deild karla:

Deildarmeistarar: ÍR-Naddóður

2. sæti: ÍR-Öðlingar

3. sæti: ÍA-W

  • Hæsti leikur: Tómas Freyr Garðarsson (ÍA-B) 300
  • Hæsta sería: Skúli Freyr Sigurðsson (ÍR-LB) 714 
  • Hæsta meðaltal: Skúli Freyr Sigurðsson (ÍR-LB) 216,85
  • Fellukóngur: Skúli Freyr Sigurðsson (ÍR-LB) 6,69
  • Stigameistari: Skúli Freyr Sigurðsson (ÍR-LB) 0,9
  • Mestu framfarir: Snæbjörn B. Þormóðsson (ÍR-Geirfuglar)
  • Stjörnuskjöldur: ÍR-Naddóður 269
  • Hæsti leikur liðs: ÍR-Naddóður 696
  • Hæsta sería liðs: ÍR-LB 1.912
  • Hæsta meðaltal liðs: ÍR-Naddóður 183,06

 

Verðlaun í 1. deild kvenna:

KFR-Valkyrjur enduðu í fyrsta sæti eftir deildarkeppni og keppa til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn við ÍR-TT sem enduðu í öðru sæti.

3. sæti: ÍR-Elding

  • Hæsti leikur: Linda hrönn Magnúsdóttir (ÍR-TT) 258
  • Hæsta sería: Alexandra Kristjánsdóttir (ÍR-VÁ) 663
  • Hæsta meðaltal: Marika Katarina E. Lönnroth (KFR-Valkyrjur) 183,29
  • Felludrottning: Marika Katarina E. Lönnroth (KFR-Valkyrjur) 4,38
  • Stigameistari: Marika Katarina E. Lönnroth (KFR-Valkyrjur) 0,75
  • Mestu framfarir: Bára Líf Gunnarsdóttir (ÍR-Píurnar)
  • Stjörnuskjöldur: ÍR-TT 268
  • Hæsti leikur liðs: KFR-Valkyrjur 651
  • Hæsta sería liðs: ÍR-TT 1.737
  • Hæsta meðaltal liðs: KFR Valkyrjur 177,31

 

Verðlaun í 1. deild karla:

Í fyrstu deild karla spila fjögur efstu liðin til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Eftir deildarkeppni var staðan þannig að ÍR-PLS var í fyrsta sæti, ÍA í öðru sæti, ÍR-L í því þriðja og KFR-Læringar í því fjórða. 

  • Hæsti leikur: Mikael Aron Vilhelmsson (ÍR-PLS) 297
  • Hæsta sería: Ásgeir Karl Gústafsson (KFR-Lærlingar) 763
  • Hæsta meðaltal: Mikael Aron Vilhelmsson (ÍR-PLS) 224,30
  • Fellukóngur: Mikael Aron Vilhelmsson (ÍR-PLS) 6,96
  • Stigameistari: Mikael Aron Vilhelmsson (ÍR-PLS) 0,89
  • Mestu framfarir: Viðar Ingi Ragnarsson (ÍR-Land)
  • Stjörnuskjöldur: ÍR-PLS 387
  • Hæsti leikur liðs: ÍR-PLS 772
  • Hæsta sería liðs: ÍR-PLS 2188
  • Hæsta meðaltal liðs: ÍR-PLS 211,63

KLÍ óskar verðlaunahöfum til hamingju með gott tímabil og þeim liðum sem eiga eftir að spila til úrslita og umspil góðs gengis á næstu dögum.

Nýjustu fréttirnar