Evrópukeppni ungmenna lokið – Brons í tvímenningi pilta

Facebook
Twitter

Nú hafa íslensku keppendurnir lokið keppni á EYC2026 en mótið sjálft klárast á morgun sunnudaginn 5. apríl með keppni 16 efstu pilta og stúlkna í Masterkeppninni – Bronsverðlaun þeirra Ásgeirs Karls og Tristan Mána er hápunktur keppninnar.

Í heildarkeppninni spilaði Ásgeir Karl Gústafsson best íslensku piltanna en hann endaði í 26. sæti af 112 keppendum með 213,7 í meðaltal Alls þurfi 218,3 til að komast í topp 16 hjá piltunum. Bára Líf Gunnarsdóttir spilaði best íslensku stúlknanna en hún endaði í 29. sæti af 57 með 185,7 í meðaltal en hjá stúlkunum þurfti 201,4 til að komast í topp 16.

Í einstaklingskeppni pilta varð það Svavar Steinn Guðjónsson sem spilaði best, varð í 47. sæti með 1.220 seríu / 203,3 og hjá stúlkunum varð það Bára Líf sem endaði í 16. sæti með 1.179 seríu / 196,5.

Í tvímenningskeppni pilta voru það þeir Ásgeir Karl og Tristan Máni sem enduðu í 4. sæti og komust því í úrslitakeppnina í því móti þar sem þeir töpuðu naumlega gegn danska tvímenninginum og þar sem ekki er spilað um 3. sætið fengu þeir bronsverðlaun ásamt austurríska tvímenningnum.

Hjá stelpunum í tvímenningu voru það þær Julía Filippa Lindén og Alexandra Erla Guðjónsdóttir sem enduðu í 21. sætinu.

Í liðakeppninni enduðu piltarnir í 8. sæti með 4.887 / 203,6 og stúlkurnar enduðu í 10. sæti með 4.137 / 172,4.

Hér eru síðan lokastöður krakkanna eftir mótið, allar nánari upplýsingar um mótið má finna á vefsíðu þess.

Name Gender G1 G2 G3 G4 G5 G6 Total AVG
Svavar Steinn Gudjonsson Boys 229 206 205 193 204 183 1220 203,3
Asgeir Karl Gustafsson Boys 177 213 202 200 217 207 1216 202,7
Tristan Mani Ninuson Boys 248 142 257 171 205 174 1197 199,5
Bara Lif Gunnarsdottir Girls 205 233 191 150 156 244 1179 196,5
Alexandra Erla Gudjonsdottir Girls 237 159 186 182 157 221 1142 190,3
Thorgils Larus Davidsson Boys 185 171 243 157 238 139 1133 188,8
Saeros Erla Johonnudottir Girls 224 182 206 163 147 157 1079 179,8
Julia Filippa Lindén Girls 167 204 147 177 144 156 995 165,8

 

Name Gender G1 G2 G3 G4 G5 G6 Total AVG
Asgeir Karl Gustafsson Boys 221 216 215 242 244 247 1385 230,8
Tristan Mani Ninuson Boys 217 267 227 226 163 220 1320 220
Svavar Steinn Gudjonsson Boys 211 143 150 189 246 225 1164 194
Thorgils Larus Davidsson Boys 212 190 192 191 162 213 1160 193,3
Bara Lif Gunnarsdottir Girls 192 131 175 170 190 217 1075 179,2
Julia Filippa Lindén Girls 182 193 170 128 177 160 1010 168,3
Alexandra Erla Gudjonsdottir Girls 133 150 214 210 148 145 1000 166,7
Saeros Erla Johonnudottir Girls 147 183 136 135 147 162 910 151,7

Team
Name Gender G1 G2 G3 G4 G5 G6 Total AVG
Svavar Steinn Gudjonsson Boys 222 184 246 215 193 224 1284 214
Asgeir Karl Gustafsson Boys 247 211 213 197 166 211 1245 207,5
Tristan Mani Ninuson Boys 227 131 182 198 210 255 1203 200,5
Thorgils Larus Davidsson Boys 192 188 193 191 189 202 1155 192,5
Bara Lif Gunnarsdottir Girls 190 215 176 161 180 167 1089 181,5
Alexandra Erla Gudjonsdottir Girls 186 170 207 149 190 170 1072 178,7
Saeros Erla Johonnudottir Girls 158 159 188 171 170 210 1056 176
Julia Filippa Lindén Girls 165 145 114 169 178 149 920 153,3

All Event
# Name Gender Singles Doubles Team Total AVG
29 Bara Lif Gunnarsdottir Girls 1179 1075 1089 3343 185,7
35 Alexandra Erla Gudjonsdottir Girls 1142 1000 1072 3214 178,6
44 Saeros Erla Johonnudottir Girls 1079 910 1056 3045 169,2
52 Julia Filippa Lindén Girls 995 1010 920 2925 162,5
26 Asgeir Karl Gustafsson Boys 1216 1385 1245 3846 213,7
41 Tristan Mani Ninuson Boys 1197 1320 1203 3720 206,7
45 Svavar Steinn Gudjonsson Boys 1220 1164 1284 3668 203,8
73 Thorgils Larus Davidsson Boys 1133 1160 1155 3448 191,6

Nýjustu fréttirnar