Hafþór Harðarson og Linda Hrönn Magnúsdóttir úr ÍR eru Íslandsmeistarar einstaklinga 2022

Facebook
Twitter

Seint í gærkvöldi lauk keppni á Íslandsmóti einstaklinga 2022 í keilunni. Voru það þau Hafþór Harðarson og Linda Hrönn Magnúsdóttir, bæði úr ÍR, sem urðu Íslandsmeistarar.

Hafþór er að vinna þennan titil annað árið í röð og alls í 6. skipti á sínum ferli. Jafnar hann þar með Magnús Magnússon úr ÍR með fjölda titla. Linda Hrönn er hins vegar að vinna þennan titil í fyrsta sinn á ferlinum og til gamans má geta þá er hún nú sú elsta sem hefur unnið þennan titil en hún er á 63. aldursári en Linda hefur oft verið í úrslitum þessa móts.

Þrír efstu karl- og kvennkeilararnir komust í úrslit mótsins eftir forkeppni og milliriðil. Voru það, auk Hafþórs, þeir Arnar Davíð Jónsson úr KFR og Einar Már Björnsson úr ÍR sem komust í úrslitin. Einar Már féll út í fyrri leik úrslitanna með 160 pinna en Hafþór spilaði þar 232 og Arnar 203. Í hreinum úrslitaleik lagði Hafþór hann Arnar með 235 pinnum gegn 164.

Auk Lindu í úrslitum kvenna mættust þær Ástrós Pétursdóttir úr ÍR og Marika Lönnroth úr KFR sem báðar hafa hampað Íslandsmeistaratitlinum. Marika féll út í fyrri leiknum með 145 gegn 177 hjá Lindu og 184 hjá Ástrósu. Linda sigraði síðan eins og segir í úrslitum þar sem hún náði 238 pinnum gegn 158.

Karlarnir skiptust á í gær að leiða keppnina fram að úrslitum. Hafþór hafði verið efstur eftir forkeppni en síðan sótti Arnar Davíð á sem og Einar. Endaði það þannig að Einar varð aðeins 6 pinnum fyrir ofan Arnar Davíð eftir milliriðilinn. Ástrós (*leiðrétt) hafði hinsvegar leitt keppnina hjá konum eftir forkeppnina.

Frá vinstri: Arnar Davíð Jónsson KFR, Hafþór Harðarson ÍR og Einar Már Björnsson ÍR

Frá vinstri: Ástrós Pétursdóttir ÍR, Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR og Marika Lönnroth KFR

Lokastaða hjá körlum eftir milliriðill í gær:

Sæti Nafn Félag Forkeppni Milliriðill Bónus stig Samtals Meðalt
1 Einar Már Björnsson ÍR 4.012 1.596 100 5.708 224,3
2 Arnar Davíð Jónsson KFR 3.956 1.646 100 5.702 224,1
3 Hafþór Harðarson ÍR 4.080 1.537 80 5.697 224,7
4 Guðlaugur Valgeirsson KFR 3.823 1.645 80 5.548 218,7
5 Gunnar Þór Ásgeirsson ÍR 3.891 1.523 60 5.474 216,6
6 Ísak Birkir Sævarsson KFA 3.882 1.490 60 5.432 214,9
7 Magnús Sigurjón Guðmundsson KFA 3.878 1.490 40 5.408 214,7
8 Jón Ingi Ragnarsson KFR 3.847 1.483 40 5.370 213,2

Lokastaða hjá konum eftir milliriðil í gær:

Sæti Nafn Félag Forkeppni Milliriðill Bónus stig Samtals Meðalt
1 Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR 3.309 1.337 80 4.726 185,8
2 Ástrós Pétursdóttir ÍR 3.223 1.331 120 4.674 182,2
3 Marika Katarina E. Lönnroth KFR 3.268 1.261 100 4.629 181,2
4 Nanna Hólm Davíðsdóttir ÍR 3.201 1.197 90 4.488 175,9
5 Katrín Fjóla Bragadóttir KFR 3.159 1.138 30 4.327 171,9
6 Hafdís Eva Laufdal Pétursdóttir ÍR 3.099 1.158 60 4.317 170,3
7 Margrét Björg Jónsdóttir ÍR 3.065 1.146 80 4.291 168,4
8 Guðný Gunnarsdóttir ÍR 2.975 1.127 0 4.102 164,1

Nýjustu fréttirnar