KFR-Valkyrjur eru Íslandsmeistarar kvennaliða 2021

Facebook
Twitter

KFR-Valkyrjur urðu í kvöld Íslandsmeistarar kvenna í keilu 2021 eftir sigur á ÍR-Buff í lokaviðureign úrslitakeppninnar. Er þetta í 11. sinn sem Valkyrjur hampa titlinum oftast allra liða í sögu KLÍ. Sigruðu þær leiki kvöldsins með 10 stigum gegn 4 og samtals úrslitaviðureignina með 22,5 stigum gegn 19,5 en ÍR-Buff leiddu viðureignina fyrir kvöldið með 15,5 stig gegn 12,5.

Í undanúrslitum mótsins lögðu KFR-Valkyrjur lið ÍR-TT en lið ÍR-Buff lagði lið ÍR-Píurnar.

Þessi sömu lið og áttust við í úrslitum mótsins í ár mætast svo síðar í úrslitum Bikarkeppni KLÍ sem fer fram á næstu vikum.

Nýjustu fréttirnar