Þór í 1. deild karla eftir sigur í umspili

Facebook
Twitter

Þór tryggði sér sæti í 1. deild næsta tímabil eftir að hafa lagt lið KR-A í umspilsleikjum um laust sæti í 1. deild karla á næsta tímabili. Lið Þórs er því komið aftur í deild þeirra bestu í keilunni eftir nokkurra ára dvöl í 2. deild karla. Þar með verða þrjú lið með heimavöll á Akranesi næsta tímabil í 1. deildinni en fyrir eru lið ÍA sem er í úrslitum deildarinnar í ár og ÍA-W sem sigraði 2. deildina í vetur.

Þór hefur tilkynnt bæði lið sín áfram næsta tímabil sem er mikið ánægjuefni en það er ekki hægt að taka því sjálfgefnu að aðilar leggi á sig að ferðast frá Akureyri suður á Skagann til að stunda íþrótt. Þessir einstaklingar innan keilunnar hjá Þór eiga mikið hrós skilið fyrir óbilandi áhuga á íþróttinni okkar og fórnfýsi.

Það væri óskandi ef aðalstjórn Þórs og bæjaryfirvöld á Akureyri legðu saman hönd á plóg við að koma upp aðstöðu fyrir keiluna í heimabæ fyrir sitt fólk. Líta má til þess sem gert hefur verið á Akranesi þar sem bæjaryfirvöld og ÍA tóku hönum saman með þeim sem starfa innan keilunnar með mjög góðum árangri. Nú sem fyrr skorar keilusamfélagið á Íslandi á aðila fyrir norðan að standa með sínu fólki því í þessu vinna allir.

Nýjustu fréttirnar