Íslandsmeistarar unglinga 2021

Facebook
Twitter

Í dag lauk keppni á Íslandsmóti unglinga 2021. Íslandsmeistarar í opnum flokki pilta og stúlkna eru þau Hlynur Helgi Atlason ÍA og Alexandra Kristjánsdóttir ÍR.

Mótinu lauk í dag með seinni leikjum forkeppninnar. Að þeim loknum var komið að úrslitakeppnum í 1. til 3. flokki en samkvæmt reglugerð þá þarf að vera að minnsta kosti 4 þátttakendur í hverjum þeim flokki til að úrslitakeppni fari fram. Því var keppt til úrslita sérstaklega í 1. flokki pilta, 2. flokki stúlkna og 3. flokki pilta. Að því loknu fóru fram úrslit í opnum flokki en þá keppa meðaltalshæstu keppendurnir til úrslita um stóra titilinn.

Í opnum flokki pilta urðu úrslitin þessi:

  1. sæti: Hlynur Helgi Atlason ÍA
  2. sæti: Matthías Leó Sigurðsson ÍA
  3. sæti: Aron Hafþórsson ÍR

Í opnu flokki stúlkna urðu úrslitin þessi:

  1. sæti. Alexandra Kristjánsdóttir ÍR
  2. sæti: Málfríður Jóna Freysdóttir KFR
  3. sæti: Hafdís Eva Laufdal Pétursdóttir ÍR

Í 1. flokki pilta urðu úrslit þessi:

  1. sæti: Aron Hafþórsson ÍR
  2. sæti: Hinrik Óli Gunnarsson ÍR
  3. sæti: Hlynur Helgi Atlason ÍA

Í 1. flokki stúlkna voru úrslit þessi:

  1. sæti: Alexandra Kristjánsdóttir ÍR
  2. sæti: Málfríður Jóna Freysdóttir KFR

Í 2. flokki pilta urðu úrslit þessi:

  1. sæti: Hrannar Þór Svansson KFR

í 2. flokki stúlkna urðu úrslit þessi:

  1. sæti: Hafdís Eva Laufdal Pétursdóttir ÍR
  2. sæti: Sóley Líf Konráðsdóttir KFR
  3. sæti: Helena Eyberg ÍR
  4. sæti: Viktoría Hrund Þórisdóttir ÍA

Í 3. flokki pilta urðu úrslit þessi:

  1. sæti: Ásgeir Karl Gústafsson KFR
  2. sæti: Matthías Leó Sigurðsson ÍA
  3. sæti: Mikael Aron Vilhelmsson KFR
  4. sæti: Tómas Freyr Garðarsson ÍA
  5. sæti: Tristan Máni Nínuson ÍR
  6. sæti: Ísak Freyr Konráðsson KFR
  7. sæti: Kristinn Már Þorsteinsson ÍR

Í 3. flokki stúlkna urðu úrslit þessi:

  1. sæti: Nína Rut Magnúsdóttir ÍA

Í 4. flokki pilta urðu úrslit þessi:

  1. sæti: Svavar Steinn Guðjónsson KFR
  2. sæti: Viktor Snær Guðmundsson ÍR
  3. sæti: Ólafur Breki Sigurðsson KFR

Í 4. flokki stúlkna urðu úrslit þessi:

  1. sæti: Særós Erla Jóhönnudóttir ÍA

Í 5. flokki pilta urðu úrslit þessi:

  1. sæti: Gottskálk Ryan Guðjónsson ÍR
  2. sæti: Haukur Leó Ólafsson ÍA

í 5. flokki stúlkna urðu úrslit þessi:

  1. sæti: Bára Líf Gunnarsdóttir ÍR
  2. sæti: Friðmey Dóra Richter ÍA
  3. sæti: Alexandra Erla Guðjónsdóttir KFR

Nýjustu fréttirnar