Íslandsmót Einstaklinga 2021

Facebook
Twitter
Nú er komin upp skráningarsíða fyrir Íslandsmót einstaklinga án forgjöf
Skráning er inn á www.keila.eventbrite.com
Nú þurfa allir að skrá sig sem fyrst þar sem að ákveðin fjöldi kemst í hvert mót miðað við sóttvarnarreglur.
Við erum bundin því að það komast einungis 50.manns í mót
það gæti farið þannig í íslandsmóti einstaklinga án forgjafar að það þurfi að spila forkeppni í tvennulagi.
Til að við vitum það er gott að allir skrái sig strax í mótið en ekki að geyma það fram á síðustu stundu eins og hefur verið síðustu ár. 
Núna lokar skráning fyrr og er það eingöngu gert til að sjá áhuga á því hvort að fólk vilji taka þátt eða ekki og að við getum samið við húsið.
Lokað er á skráningu mánudeginum fyrir mót, sem að er fyrr en vanalega. Þannig að það er um að gera að skrá sig strax 🙂
 

Íslandsmót einstaklinga 2021
verður haldið dagana 13.mars til 16.mars í Keiluhöllinni Egilshöll.

Vinsamlegast ath að mótanefnd áskilur sér rétt til breytinga ef þurfa þykir miðað við sóttvarnar reglur

Olíuburður í mótinu er: ETBF ECC

Nú verður ekki posi á staðnum.
Hægt verður að greiða með pening á staðnum eða að leggja inn á reikning hjá KLÍ og senda staðfestingu á greiðslu á [email protected] eða koma með útprentun á kvittun í mótið
Keilusamband Íslands,KLÍ
Kennitala 460792-2159
0115-26-010520

Forkeppni Laugardaginn 13 & Sunnudaginn 14.Mars kl 19:00
Spilaðir eru 12 leikir í tveimur 6 leikja blokkum.
Verð í forkeppni kr. 14.000kr

Efstu keppendur í bæði karla- og kvennaflokki skv. upptalningu hér að neðan spila 6 leiki og fylgir skorið úr forkeppninni í milliriðil,

8 efstu eftir milliriðil komast í undanúrslit.

17 þátttakendur eða færri = 10 keilarar áfram í milliriðil.
18 til 19 þátttakendur = 12 áfram í milliriðil.
20 til 21 þátttakendur = 14 áfram í milliriðil.
22 þátttakendur eða fleiri = 16 áfram í milliriðil.

 

Milliriðill mánudaginn 15.Mars kl 19:00
Spilaðir eru 6 leikir.
Verð í milliriðil kr. 6.500kr

Efstu 8 karlar og 8 konur halda áfram í undanúrslit.

Undanúrslit þriðjudaginn 16.mars kl 9:00
Verð í undanúrslit kr. 7.500kr

Undanúrslit:
Allir keppa við alla, einfalda umferð.
Á stigin fyrir leikina bætast bónusstig þannig:
Fyrir sigur í leik fást 20 bónusstig
fyrir jafntefli í leik fást 10 bónusstig

Að loknum þessum leikjum fara 3 efstu keppendurnir í úrslit.

Úrslit: að loknum undanúrslitum

Spiluð eru úrslit milli þriggja efstu manna/kvenna sem leika allir einn leik á sama setti
Allir leika einn leik og fellur úr leik sá sem hefur lægsta skorið.

Eftir eru tveir keppendur og leika þeir einn leik til úrslita og fær sigurvegarinn titilinn Íslandsmeistari einstaklinga.

Sé einhversstaðar í úrslitum jafnir leikir sem verða til þess að ekki sé hægt að skera úr um hvort keppandi detti út eða vinni leik skal útkljá leikinn með því að leikmenn kasta einu kasti og sá vinnur sem fellir flestar keilur.

Ef enn er jafnt skal endurtaka þetta þar til úrslit liggja fyrir.

 

Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur 05.mars kl 18:00

 

Mótanefnd KLÍ

 

Mótanefnd áskilur sér rétt til breytinga ef þurfa þykir miðað við sóttvarnar reglur

Nýjustu fréttirnar