Íslandsmót Einstaklinga 2021 með forgjöf

Facebook
Twitter
Íslandsmót Einstaklinga með forgjöf 2021 fer fram 20 – 23.feb
Skráning fer eingöngu fram á netinu og verður hægt að skrá sig til kl 18:00 fimmtudagin 18.feb 2021
ATH að vegna sóttvarnalaga að þá eru fjöldatakmörk í mótið og best er að skrá sig sem fyrst en ekki að vera að bíða með það.
Muna að skrá sig á réttan flokk,
Konur skrá sig í konur og karlar í karla 👍
 

Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur mánudaginn 15. febrúar klukkan 18:00.
Skráning hér

Olíuburður í mótinu er: Chromium 6742

Forkeppni 20 & 21 febrúar 2020

Spilaðir eru 8 leikir í tveimur 4 leikja blokkum.

Keppni byrjar kl. 09:00 Laugardag og sunnudag

Verð í forkeppni kr. 10.000,-

Nú verður ekki posi á staðnum.

Hægt verður að greiða með Pening á staðnum eða að leggja inn á reikning hjá KLÍ og senda staðfestingu á greiðslu á [email protected] eða koma með útprentun á kvittun í mótið

Keilusamband Íslands,KLÍ

Kennitala 460792-2159

0115-26-010520

12 efstu karlarnir og 12 efstu konurnar halda áfram í milliriðil.

Milliriðill karla

12 efstu keppendurnir spila 4 leiki,

6 efstu keppendurnir komast í undanúrslit og fylgir skorið úr forkeppninni og milliriðlinum.

 

Milliriðill kvenna

12 efstu keppendurnir spila 4 leiki,

6 efstu keppendurnir komast í undanúrslit og fylgir skorið úr forkeppninni og milliriðlinum.

 

Milliriðill mánudaginn 22.feb kl 19:00

 

Spilaðir eru 4 leikir.

Verð í milliriðil kr. 5.500,-

Efstu 6 karlar og 6 konur halda áfram í undanúrslit.

 

Undanúrslit þriðjudaginn 23.feb kl 19:00

Verð í undanúrslit kr. 5.500.

 

Undanúrslit:

 

Allir keppa við alla, einfalda umferð.

Á stigin fyrir leikina bætast bónusstig þannig:

Fyrir sigur í leik fást 20 bónusstig

fyrir jafntefli í leik fást 10 bónusstig

 

Að loknum þessum leikjum fara 3 efstu keppendurnir í úrslit.

 

Úrslit spiluð á eftir undanúrslitum

 

Úrslit:

Spiluð eru úrslit milli þriggja efstu manna/kvenna

Allir leika einn leik og fellur úr leik sá sem hefur lægsta skorið.

Eftir eru tveir keppendur og leika þeir einn leik til úrslita og fær sigurvegarinn titilinn Íslandsmeistari einstaklinga.

Sé einhversstaðar í úrslitum jafnir leikir sem verða til þess að ekki sé hægt að skera úr um hvort keppandi detti út eða vinni leik skal útkljá leikinn með því að leikmenn kasta einu kasti og sá vinnur sem fellir flestar keilur.

Ef enn er jafnt skal endurtaka þetta þar til úrslit liggja fyrir.

Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur fimmtudaginn 18. febrúar klukkan 18:00.

Mótanefnd KLÍ

Mótanefnd áskilur sér rétt til breytinga ef þurfa þykir.

Nýjustu fréttirnar