Íslandsmót með forgjöf 2015

Facebook
Twitter

 Íslandsmót einstaklinga með forgjöf verður haldið í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og Keiluhöllinni Egilshöll dagana 28.feb – 3. mars n.k.

Sjá auglýsingu eða fara beint á skráningarsíðu.
 
Forkeppni – helgina 28.feb. – 1. mars kl. 10:00 í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og Egilshöll.  
       
Allir keppendur spila 8 leiki í forkeppninni, 4 leiki hvorn dag, annan daginn í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og hinn daginn í Keiluhöllinni Egilshöll. Efstu 12 karlarnir og efstu 12 konurnar halda áfram í milliriðil. Verð í forkeppni kr. 6.500.-
 
Milliriðill – mánudaginn 2. mars kl. 19:00 í Keiluhöllinni Egilshöll                                          
Efstu 12 karlarnir og 12 konurnar spila 4 leiki í milliriðli. Efstu 6 karlarnir og efstu 6 konurnar halda áfram í undanúrslit. Verð í milliriðil er kr. 3000.-
 
Undanúrslit – þriðjudaginn 3. mars kl. 19:00 í Keiluhöllinni Egilshöll                                    
Efstu 6 karlarnir og efstu 6 konurnar spila 5 leiki, allir við alla, einfalda umferð. Verð í undanúrslit kr. 3.700 kr.-
 
Úrslit – þriðjudaginn 3. mars strax að loknum undanúrslitum                                               
Spiluð eru úrslit milli tveggja efstu manna/kvenna, sá/sú sem er efst að stigum fyrir úrslit nægir að vinna tvær viðureignir (2 stig) en annað sætið þarf að vinna þrjár (3 stig). Jafnteflisviðureignir telja sem skipt viðureign (1/2 stig á hvorn), ef enn er jafnt eftir 5 leiki þá ræður pinnafall.        
 
Sigurvegarinn fær titilinn Íslandsmeistari einstaklinga með forgjöf.
 
Olíuburður í mótinu er  2013 EBT 14 – BNC Open      39 fet     Ratio 2,36
 
 
Andrea Björk Sigrúnardóttir ÍR og Matthías Leó Sigurðsson ÍA eru Íslandsmeistarar einstaklinga með forgjöf 2014

Nýjustu fréttirnar