Íslandsmeistarar í tvímenningi 2014

Facebook
Twitter
Arnar Sæbergsson og Magnús Magnússon ÍR KLSHelgina 25. til 26. október s.l. var Íslandsmeistaramót í tvímenningi haldið í Keiluhöllinni Egilshöll. Leikar fóru þannig að Magnús Magnússon og Arnar Sæbergsson, sem báðir spila með ÍR KLS, sigruðu þá Hafþór Harðarson ÍR og Magnús S Guðmundsson ÍA. Sigruðu þeir Magnús og Arnar í tveim leikjum 456 – 426 og 426 – 365. Í þriðja sæti urðu svo þeir Guðlaugur Valgeirsson KFR og Skúli Freyr Sigurðsson ÍA.

Nýjustu fréttirnar