Íslandsmót í Tvímenning 2014

Facebook
Twitter

 Opnað hefur verið fyrir skráningu í mótið sem verður haldið 25. og 26. okt. um næstu helgi.

Netskráning HÉR.

Íslandsmót í tvímenningi 2014

 

Verður haldið dagana 25. og 26. október.

Olíuburður verður  2013 EBT 14 – BNC Open     39 fet    Ratio 2,36

Forkeppni laugardaginn 25. október kl. 8:00 í Egilshöll

Spilaðir eru 4 leikir. Efstu 10 tvímenningarnir halda áfram í milliriðil. Verð í forkeppni kr.

6,500,- pr. tvímenning.

Milliriðill laugardaginn 25. október kl. 10:00 í Egilshöll

Spilaðir eru 4 leikir. Efstu 6 tvímenningarnir halda áfram í undanúrslit. Verð í milliriðil kr.

6,000,- pr. tvímenning.

 

Undanúrslit sunnudaginn 26. október kl. 8:00 í Egilshöll

Spilað er allir við alla einföld umferð. Efstu 2 tvímenningarnir leika til úrslita strax að

loknum undanúrslitum. Verð í undanúrslit kr. 6,500,- pr. tvímenning.

Úrslit sunnudaginn 26. október – strax að loknum undanúrslitum:

Tveir stigahæstu tvímenningarnir leika síðan til úrslita, sá tvímenningur sem er efstur að

stigum fyrir úrslit nægir að vinna tvær viðureignir (2 stig) en annað sætið þarf að vinna

þrjár (3 stig). Jafnteflis viðureignir teljast sem hálft stig á hvorn tvímenning. Ef enn er jafnt

eftir 5 leiki skal pinnafall ráða. Sjá nánar í reglugerð KLÍ um Íslandsmót í tvímenningi.

 

Skráning fer fram á netinu á kli.is og lýkur fimmtudaginn 23. október klukkan 22.00

Vinsamlegast skráið báða aðilana.

 

Mótanefnd KLÍ

Nefndin áskilur sér rétt til breytinga ef þurfa þykir.

Nýjustu fréttirnar