Íslandsmót unglingaliða – Staðan eftir 4. umferð

Facebook
Twitter

Keppni í 4. umferð Íslandsmóts unglingaliða fór fram í Keiluhöllinni í Egilshöll, laugardaginn 11. janúar s.l. Þorsteinn Hanning Kristinsson spilaði hæsta leik umferðarinnar 180, en Ágúst Stefánsson og Jökull Byron Magnússon spiluðu báðir 179. Lið ÍA-1 er komið með nokkuð örugga forystu á toppnum og er nú með 30 stig. ÍR-1 er í 2. sæti með 23 stig og KFR-1 er í 3. sæti með 18 stig. Sjá stöðuna og skor umferðar

Á Íslandsmóti unglingaliða eru spilaðar 5. umferðir á keppnistímabilinu og síðan keppa fjögur efstu liðin til úrslita. Keppt er í þriggja manna liðum og þátttökurétt hafa unglingar sem eru félagar í keilufélagi og eru í 5. – 10. bekk grunnskóla. Að þessu sinni eru fimm lið skráð til leiks, tvö lið frá ÍA, tvö lið frá ÍR og eitt lið frá KFR. Í hverri umferð er spiluð einföld umferð allir við alla, eða 4 leikir. Sjá nánar um Íslandsmót unglingaliða og dagskrá unglingamóta í vetur.

Nýjustu fréttirnar