Þrír leikir í 3. deild karla

Facebook
Twitter

KR ingar styrkja stöðu sína á toppnum í 3. deild karla. Einnig voru Múrbrjótsmenn að gera góða hluti, Fagmenn og Gaurar eiga þó leik til góða.

Þar unnu ÍA B góðan sigur á ÍFH Stuðboltum 616-539,533-474 og 574-517. 17-3 sigur 1723-1530. Gylfi með hæstu seríu 478 en Elvar með hæstan leik 178 báðir spila með ÍA.

ÍR Gaurar spiluðu gegna ÍFH Múrbrjótum sem kláruðu leikinn næsta auðveldlega 690-552,700-550 og 681-604 Þröstur með hæstan leik 197 og Jóhann með hæstu seríu 551 18-2 lokastaða 2071-1706.

Reynslumesta lið 3ju deildar KR D tóku á móti ÍR S sem er yngsta lið deildarinnar og það reynsluminnsta Kr ingar unnu fyrsta og þriðja leik nokkuð sannfærandi en töpuðu öðrum leiknum, 693-629,655-673 og 703-591 2051-1893 eða 14,5 gegna 5,5.
Hössi með hæstan leik og seríu 207 og 601 (KR).

Sjá stöðuna í deildinni í 13. umferð

Nýjustu fréttirnar