RIG 2014 – Forkeppni lokið

Facebook
Twitter

Forkeppni keilukeppni RIG lauk í Egilshöll í dag. Alls tóku 58 keilarar þátt í mótinu. Magnús Magnússon ÍR er efstur keppenda, en hann spilaði 1.499 eða 250 að meðaltali í leik í 6 leikjum. Í 2. sæti er Svíinn Robert Anderson með 1.480, í því 3. Bretinn Lisa John með 1.446 og Hafþór Harðarson ÍR er í 4. sæti með 1.421. Sjá stöðuna eftir forkeppni.

16 efstu komust áfram í milliriðil sem spilaður verður í Egilshöll á morgun, sunnudag 26. janúar og hefst keppni kl. 10:00. 

Keppni í milliriðilinum verður sýnd á Bowling Iceland TV1. Að milliriðli loknum verður leikið til úrslita og verða úrslitin sýnd í beinni útsendingu á SportTV.

Keilumót Reykjavíkurleikanna, RIG 2014 fer fram í Keiluhöllinni í Egilshöll. Fyrsti riðill í forkeppni mótsins (early bird) fer fram laugardaginn 18. janúar kl. 9:00, en aðrir riðlar í forkeppninni eru föstudaginn 24. janúar kl. 17:30 og laugardaginn 26. janúar kl. 9:00 og 13:30. Keppni í milliriðli og úrslitakeppni fer síðan fram sunnudaginn 26. janúar og verður bein útsending frá úrslitunum á mbl.is. Olíuburður í mótinu er 2013 USBC Women’s Championships – Reno 40 fet. Sjá auglýsingu og reglugerð fyrir RIG mótið.

Mótið er jafnframt 2. umferð AMF World Cup mótaraðarinnar, en sigurvegara í karla- og kvennaflokki á mótaröðinni ávinna sér keppnisrétt á Qubica AMF World Cup 2014. Í úrslitum mótaraðarinnar eiga keppnisrétt 10 stigahæstu keppendurnir úr öllum þremur AMF mótum vetrarins. Sjá stöðuna eftir 1. umferð.

Þrír erlendir keppendur taka þátt í mótinu, Svíinn Robert Andersson og ensku landsliðskonurnar Lisa John og Joanne Allsebrook. Þess má geta að Lisa er silfurhafi frá síðasta Evrópumóti landsmeistara sem fram fór í Bratislava og JoJó var í landsliði Englendinga á The World Championships í Las Vegas í Ágúst. Robert Andersson þarf vart að kynna svo oft hefur hann glatt augu okkar á undaförnum árum. Þetta eru sterkir keppendur sem verður gaman að fylgjast með í keppni við bestu íslensku keilarana.

Sjá einnig heimasíðu keiludeildar ÍR, Facebook síðu keiludeildar ÍR, heimasíðu RIG, Facebook síðu RIG, síðu Reykjavíkurleikanna á mbl.is og upplýsingar um beinar útsendingar frá RIG 2014

Bein útsending verður frá riðlum forkeppninnar og keppni í milliriðli á síðunni Bowling Iceland TV1 og þar verður einnig hægt að horfa á upptökur frá keppninni. Úrslitakeppnin verður einnig sýnd beint með lýsinguá SportTV.

Nýjustu fréttirnar