Breytingar/frestanir leikja á Íslandsmóti liða

Facebook
Twitter

Mótanefnd KLÍ hefur tilkynnt eftirfarandi breytingar/frestanir á leikjum á Íslandsmóti liða:
Leiktímum í 5. umferð 1. deildar kvenna og 1. deildar karla hefur verið víxlað, þannig að ÍA og ÍR-BK spila í Keilusalnum á Akranesi sunnudaginn 21. október n.k. kl. 13:00, en ÍA og ÍR-KLS spila sama dag kl. 16:00.

Leik ÍR-PLS og KFR-Lærlinga í 4. umferð 1. deildar karla sem fara átti fram í Keilhöllinni Egilshöll þriðjudaginn 16. október var frestað að beiðni ÍR-PLS  vegna þátttöku Hafþórs Harðarsonar í móti á vegum KLÍ, en ekki búið að ákveða nýjan leikdag.

Leik Þórs og ÍFH-A í 5. umferð A riðils 2. deildar karla sem leika átti í Keilunni á Akureyri laugardaginn 20. október hefur verið frestað að beiðni ÍFH-A og hefur nýr leikdagur verið áveðinn laugardaginn 17. nóvember n.k. kl. 15:00.

Leikur ÍR-TT á móti KFA-ÍA í 8. umferð 1. deildar kvenna sem var á dagskránni í Egilshöllinni mánudaginn 26. nóvember hefur verið fluttur til þriðjudagsins 20. nóvember kl. 19:00 að beiðni ÍR-TT vegna þátttöku Guðnýjar Gunnarsdóttir í móti erlendis.

Leikur ÍA  og ÍR-Buff í 9. umferð 1. deildar kvenna sem fara átti fram í Keilusalnum á Akranesi sunnudaginn 9. desember, hefur verið fluttur á mánudaginn 10. desember kl. 19:00 að ósk ÍR-Buff.

Sjá nánar

Nýjustu fréttirnar