ECC 2012 Keppnin hafin

Facebook
Twitter

Að loknum fyrstu 8 leikjunum á Evrópubikarmóti einstaklinga ECC 2012 er Hafþór Harðarson í 15. sæti af 42 keppendum með samtals 1.611 pinna eða 201,4 að meðaltali í leik. Leikir Hafþórs voru 189, 208, 208, 203, 186, 199, 213 og 205.
 

Hafþór spilar næst föstudaginn 19. október kl 9:00 að staðartíma eða kl. 7:00 að íslenskum tíma. Þá verða spilaðir 8 leikir í mið olíuburði og reikna má með að Hafþór þurfi að hækka sig töluvert og vera með um 220 meðaltal í þeim leikjum til að eiga möguleika á sæti í úrslitakeppninni. Sjá nánar heimasíðu mótsins og Facebook síðuna

Nýjustu fréttirnar