Íslandsmót unglingaliða 1. umferð

Facebook
Twitter

Fyrsta umferðin á Íslandsmóti unglingaliða á þessu keppnistímabili fór fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 13. október s.l. Fimm lið eru skráð til keppni í mótinu að þessu sinni, tvö lið frá ÍR, eitt frá KFR og tvö frá ÍA.

Staðan er nú þannig að ÍR 1 er í efsta sæti með 8 stig, ÍA 1 er í öðru sæti með 4 stig og lið KFR er í þriðja sæti einnig með 4 stig. Sjá nánar stöðuna í mótinu og úrslit leikja á síðu mótsins.

Nýjustu fréttirnar