Evrópubikar einstaklinga ECC 2012

Facebook
Twitter

Hafþór Harðarson ÍR verður fulltrúi Íslands á Evrópubikarmóti landsmeistara í keilu 2012 (European Champions Cup) sem haldið verður í Haag í Hollandi dagana 15. – 22. október n.k.

Karen Rut Sigurðardóttir ÍR, sem ávann sér einnig rétt til þátttöku á mótinu með Íslandsmeistarartitlinum hefur hins vegar tekið sér frí frá keiluiðkun um einhvern tíma.

Hörður Ingi Jóhannsson mun fylgja Hafþóri á mótið sem fararstjóri og þjálfari á vegum KLÍ. Óskum við Hafþóri góðs gengis á mótinu og þeim feðgum báðum góðrar ferðar.

Æfingar og mótssetning er þriðjudaginn 16. október n.k. og keppni hefst miðvikudaginn 17. október. Fylgist með á heimasíðu mótsins og Facebook síðunni .

 

Nýjustu fréttirnar