Áskorun til KLÍ

Facebook
Twitter

Stjórn KLÍ barst í fyrradag áskorun varðandi olíuburði.  Stjórn svaraði í gær en þar sem ekki voru allir þeir sem skrifuðu undir afritaðir í póstinum var ákveðið að birta svar stjórnar einnig hér.

Góðan daginn,

Því miður getur stjórn ekki orðið við þessari áskorun.

Helsti galli á áskorun þessari er tímasetningin.   Varðandi Íslandsmót
einstaklinga, þá er ekki mögulegt að breyta móti sólarhring áður en
skráningu lýkur.  Ef þessi áskorun hefði komið í síðasta mánuði þegar
mótið var auglýst hefði verið sjálfsagt að skoða tillöguna að hafa
styttra á milli olíuburða.  Ef við breytum þarf að auglýsa mótið aftur
og það er ekki mikið um göt í dagskránni sem við getum komið mótinu
fyrir í .  Einnig eru keppendur að koma erlendis frá og væntanlega
miða sitt kúluval við  auglýsta olíuburði.

Varðandi deildarolíuburðinn, ef olíuburðinum yrði breytt þá náum við
ekki að klára deildarspilamennskuna á áætluðum tíma, þ.e. væntanlega
þyrfti að leika þær umferðir aftur sem þegar hafa verið leiknar í
þessum olíuburði, svo ekki sé minnst á kostnaðinn.

f.h. stjórnar KLÍ
Þórir Ingvarsson
formaður

 

Nýjustu fréttirnar