Evrópukeppni landsmeistara

Facebook
Twitter

Í dag lauk leik hjá bæði Lísu og Steina á Evrópumótinu, Lísa byrjaði í morgun og náði 1518 í blandaða olíuburðinum ( stutt hægra megin og löng vinstra megin) eða 189,5 í meðaltal, samtals lauk hún leik á 191 í meðaltal og í 24. Sæti.

 Steini byrjaði frábærlega spilaði 300 leik í fyrsta leiknum í morgun – og er það fyrsti og eini 300 leikurinn til þessa á mótinu – en samtals lék hann 1811 eða 226,38 í meðaltal sem er frábært, núna þegar fyrri riðlinum er lokið þá er hann í 4. Sæti í samanlögðu með 214,58 meðaltal sem er mjög gott, en ekki er hægt að búast við að hann nái í niðurskurðinn en 8 efstu fara áfram í úrslit.

 

Með bestu kveðju frá Krít,

Valgeir, Lísa og Steini.

Nýjustu fréttirnar