Evrópukeppni landsmeistara

Facebook
Twitter

Þá hafa bæði Lísa og Steini lokið leik í stuttu olíunni, Lísu gekk mjög vel spilaði 1652 eða 206,5 í meðaltal og er í 15 sæti af 37 keppendum.

Steini spilaði 1699 eða 212,38 í meðaltal og var ósáttur – er í 7 sæti af þeim 18 sem hafa lokið 8 leikjum, aðrir 18 leika sína 8 leiki í stuttu olíunni í fyrramálið.

 

Lísa leikur síðan sína 8 leiki í löngu olíunni seinni partinn á morgun en Steini á frí.

 

Bestu kveðjur frá Krít.

Valgeir

Nýjustu fréttirnar