WWC í Las Vegas dagur 1

Facebook
Twitter

komið þið sæl, við vorum að klára official practice í algjörlega klikkuðum sal, 60 brautir og hefur salurinn verið í notkun í 6 mánuði og verður tekinn niður strax eftir að mótið er búið(svona er nú lífið í henni Ameríku).  Æfingin gekk bara nokkuð vel og voru stelpurnar ánægðar.  Við erum að fara á opnunar hátíðina núna eftir klukkutíma.  Á morgun kl. 13.30 byrjar Alda á einstaklingskeppninni og Guðný og Lísa byrja svo kl. 18.00(staðartími) spilað verður í stuttri olíu,.  Á miðvikudaginn verður svo spilaður tvímenningur í mið olíu.  Það er enn svaka heitt og varla hægt að vera úti.

meira seinna og það byðja allir að heilsa

Hörður Ingi

Las Vegas

Nýjustu fréttirnar