Dagur 6 í Bankok

Facebook
Twitter

 

Fréttir frá Bankok eru að keppni í 5 manna liða keppninni lauk í dag. Í gær léku strákarnir í langri olíu og spilaðist þannig að Andrés spiæ‘laði 505, Maggi 550, Steini 553, Addi 573, Hafþór 542 og Andrés 548. Addi var sá eini sem sýndi einhvern lit þennan dag. Í dag var spilað í stuttri olíu og var skor eftirfarandi: Andrés 599, Maggi 581, Steini 593, Addi 579, Hafþór 604 og Andrés 597, nú skiluðu allir þokkalegu skori. Okkar besta skor í liðakeppninni var 1125, sem var bara nokkuð gott. Á morgun sila strákarnir í einstakling í langri olíu. Það er mikið talað um olíuburðinn á meðal bestu spilaranna, í gær í 3 leik þurfti að spila alveg upp á 6 pílu og það er ekki auðveltVið ætlum að reyna að komast á markað núna í vikulok og helst að komast á strönd á sunnudag, því við förum ekki fyrr en um nóttina heim.
Ég kveð að sinni
Hörður Ingi

Nýjustu fréttirnar