Undanúrslit í Bikarkeppni liða

Facebook
Twitter

Áður en Utandeildin hófst í Keiluhöllinni s.l. fimmtudag var dregið í undanúrslit í Bikarkeppni liða.

 
Eftirtalin liðs drógust saman í karlaflokki:
ÍR-L            –    KFK-Keiluvinir
KFR-Lærlingar    –    ÍR-PLS
 
Í kvennaflokki drógust saman:
ÍR-KK            –    KFR-Afturgöngur
ÍR-TT            –    KFR-Valkyrjur
 
Allir leikirnir fara fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð.
 

Ákveðið hefur verið að úrslitaleikirnir í Bikarkeppninni verði leikin sama dag og Árshátíð Keilusambandsins fer fram, laugardaginn 26. apríl.  Í ljósi þess hefur verið ákveðið að færa leiki í undanúrslitum til og verða þeir leiknir sunnudaginn 6. apríl kl. 9:00

 
Þá má að lokum geta þess að kæru Keiludeildar KR vegna leiks KR-A og KFK-Keiluvina í 16 liða úrslitum var vísað frá Dómstól ÍSÍ í síðustu viku.

Nýjustu fréttirnar