Íslandsmótið heldur áfram

Facebook
Twitter

Í morgun hófu 18 karlar og 4 konur keppni í Íslandsmóti einstaklinga og léku 6 leiki.  Það var Linda Hrönn Magnúsdóttir úr ÍR sem lék best kvenna í morgun og er efst ef miðað er við meðaltal.  Þá náði Jóna Gunnarsdóttir úr KFR þriðja sæti.

Í karlaflokki var það Jörundur Jörundsson úr ÍR sem lék best, en hann náði þó ekki meðaltali Steinþórs frá því um síðustu helgi og er í öðru sæti.  Skammt á eftir Jörundi er Magnús Magnússon úr KR.

Keppni heldur áfram í fyrramálið, þegar þessir 22 aðilar leika sína síðari 6 leiki í forkeppninni.

Nýjustu fréttirnar