Tvímenningskeppni hafin

Facebook
Twitter

Þeir Haþór Harðarson og Árni Geir Ómarsson hófu keppni í tvímenning nú í morgun. Skorið var ekki hátt í stutta olíuburðinum í morgun, en efstir að loknum fyrsta hópnum eru heimamennirnir Thomas Gross og Thomas Tybl með 213,41 í meðaltal.  Hafþór og Árni Geir byrjuðu ágætlega en misstu dampinn og enduðu með 1.955, eða 163 í meðaltal.  Einhver vandræði eru á tölvukerfinu og því ekki hægt að nálgast skor einstakra leikja á vef mótsins, en unnið ku vera að lagfæringu á því.
Leiktímar okkar manna í tvímenningskeppninni eru eftirfarandi:

  • Hafþór og Árni Geir – hópur 1 – mánudag 9:00 og þriðjudag 13:30
  • Stefán og Andrés Páll – hópur 2 – mánudag 13:30 og þriðjudag 18:00
  • Róbert Dan og Björn – hópur 4 – þriðjudag 9:00 og miðvikudag 13:30

Leikið er í stuttum olíuburði í fyrra skiptið, og löngum í þeim síðari.

Nýjustu fréttirnar