Tvímenningur hefst á morgun

Facebook
Twitter

Tvímenningskeppni á Evrópumóti karla hefst á morgun, mánudag, og stendur til miðvikudags.  Leiknir eru tvisvar sinnum sex leikir, fyrra skiptið í stuttum olíuburði, 35 fet, og það síðara í löngum, 45 fet.  Vegna fjölda þjóða er leikið í fjórum hollum og leika þrjú á dag.

Tilkynnt hefur verið hvaða tvímenningum verður teflt fram fyrir Íslands hönd, og eru þeir eftirfarandi:

  • Hafþór Harðarson og Árni Geir Ómarsson
  • Stefán Claessen og Andrés Páll Júlíusson
  • Róbert Dan Sigurðsson og Björn Sigurðsson

Ekki hefur verið tilkynnt í hvaða hollum hvaða tvímenningar leika.

Nýjustu fréttirnar