14. Ársþing KLÍ haldið í gær

Facebook
Twitter

Í var 14. ársþing KLÍ haldið í ÍR heimilinu við Skógarsel.  21 fulltrúi frá sat þingið ásamt stjórn og þingforseta, Hafsteini Pálssyni, sem á sæti í framkvæmdastjórn ÍSÍ.  Hann flutti þinginu kveðju frá ÍSÍ og sæmdi Valgeir Guðbjartsson, fráfarandi formann KLÍ, gullmerki ÍSÍ.  Valgeir hefur verið formaður KLÍ frá árinu 1999, en hann gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku.

Fyrir þinginu lá meðal annars tillaga frá stjórn KLÍ um breytingu á reglugerð um Íslandsmót liða á þann hátt að mæti lið ekki til leiks skuli það lið sem mætir ekki spila leikinn.  Nokkrar umræður urðu um hana, en tillagan var felld í atkvæðagreiðslu.  Þá samþykkti þingið áskorun til fjölmiðla um að gera jaðaríþróttum betri skil í íþróttafréttum.

Þórhallur Hálfdánarson var sjálfkjörinn nýr formaður KLÍ þar sem aðrir buðu sig ekki fram. Þórhallur var kjörinn í stjórn á síðasta þingi og losnaði því um eitt sæti í stjórn til eins árs.  Í framboði til þess voru Valgeir fráfarandi formaður og Einar Jóel Ingólfsson, og var Valgeir kjörinn með 11 atkvæðum gegn 10. Tvö önnur sæti í stjórn voru til kjörs, og gaf Bragi Már Bragason áfram kost á sér, en Guðmundur Sigurðsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Árni Geir Ómarsson tekur sæti hans, en fleiri gáfu ekki kost á sér en Bragi og Árni Geir.

Í varastjórn gáfu fimm kost á sér í þrjú sæti og voru það þau Laufey Sigurðardóttir, Einar Jóel Ingólfsson og Andrés Páll Júlíusson sem kjörin voru í varastjórn.  Theódóra Ólafsdóttir og Þórarinn Már Þorbjörnsson náðu ekki kjöri.

Er þeim sem úr stjórn og varastjórn ganga þakkað fyrir störf sín og nýjir stjórnarmenn boðnir velkomnir.

Nýjustu fréttirnar