Lærlingar og Valkyrjur bikarmeistarar

Facebook
Twitter

KFR-Lærlingar unnu KR-b í jöfnum og spannandi leik 3-0 og munaði einungis 3 pinnum í öðrum leik á liðunum.  KFR-Lærlingar eru því bikarmeistarar liða í fjórða skiptið og eru þeir því búnir að jafna met Þrasta sem hafa einnig unnið titilinn 4 sinnum. KFR-Lærlingar voru bikarmeistarar árin 1994, 1996 og 2000.
KFR-Valkyrjur unnu ÍR-TT nokkuð sannfærandi í gær 3-0. KFR-Valkyrjur eru því bikarmeistarar þriðja árið í röð, en KFR-Afturgöngur hafa oftast unnið titilinn eða fimm ár í röð.

 

 


KFR-Lærlingar

KFR-Valkyrjur

Nýjustu fréttirnar