Úrslitakeppni Utandeildar KLÍ

Úrslitakeppni Utandeildar KLÍ fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll laugardaginn 4. maí og hefst keppni kl. 11:00. Til úrslita keppa efstu tvö liðinu úr hverjum riðli, en þau eru Landsbankinn 1 og Utandeildarmeistarar síðasta árs Geirfuglar úr Riðli 1. Naddóður og Langi burður og feykjurnar úr Riðli 2 og Steven Segal og Amish-the way of life úr Riðli 3. Keppnin fer fram á brautum 7 – 12, sjá brautaskipan í úrslitum.

Sjá upplýsingar um Utandeild KLÍ hér

Í úrslitum leika liðin einfalda umferð eftir sama fyrirkomulagi og í riðlakeppninni. Það lið sem hefur flest stig að þessum leikjum umferðum loknum er Utandeildarmeistari. Ef tvö eða fleiri lið eru með jafnmörg stig sigrar það lið sem er með hærra meðaltal úr úrslitakeppninni. Ef það er jafnt gildir meðaltal úr forkeppninni og ef það er jafnt skal hlutkesti ráða úrslitum. Ef fjöldi liða í úrslitakeppni er fleiri en 4 lið skal leika einfalda umferð. Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í deildinni og hlýtur sigurvegarinn auk þess veglegan farandgrip til varðveislu í eitt ár. Auk þessa eru veitt margvísleg liða- ogeinstaklingsverðlaun.

Úrslitakeppni 1. deildar karla – 2. leikur

Önnur viðureignin í úrslitum 1. deildar karla á Íslandsmóti liða á milli ÍR-KLS og ÍR-PLS fór fram í Egilshöllinni í kvöld. ÍR-KLS vann með 14 stigum gegn 6 stigum ÍR-PLS og staðan er því þannig að ÍR-KLS er með 25 stig á móti 15 stigum ÍR-PLS. Þriðja og síðasta viðureignin um Íslandsmeistaratitilinn og seinni heimaleikur deildarmeistaranna ÍR-KLS fer fram í Egilshöllinni annaðkvöld, þriðjudaginn 30. apríl og hefst kl. 19:00.

Lið ÍR-PLS byrjaði betur í kvöld og vann 4 – 2 í fyrsta leiknum með 761 pinna á móti 726. ÍR-KLS náðu að svara fyrir sig í öðrum leiknum og unnu hann 5 – 1 með 832 pinnum  á móti 807. Í þriðja leiknum gáfu bæði liðin í og fór hann 5 – 1 fyrir KLS sem spilaði 904 en PLS 879. Samtals var ÍR-KLS með 2.462 pinna og ÍR-PSL með 2447. Andés Páll Júlíusson ÍR-KLS spilaði best í kvöld með 692 seríu, Róbert Dan Sigurðsson ÍR-PLS spilaði 639 og gamla brýnið Hörður Ingi Jóhannsson spilaði 622. Stöðuna í úrslitakeppninni er hægt að sjá hér

Úrslitakeppni 1. deildar karla og kvenna fer þannig fram að fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina komast í úrslitakeppni þar sem spilað er samkvæmt útsláttarfyrirkomulagi, það er að liðið sem er í efsta sæti deildarinnar keppir við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti keppir við liðið í 3. sæti. Leiknar skulu tvær viðureignir, heima og heiman, og fær hærra liðið heimaleik fyrst. Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar 2 viðureignir, ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða. Sigurvegarar úr þessum tveim viðureignum skulu leika þrjár viðureignir heima og heiman. Liðið sem varð hærra í deildarkeppninni skal eiga heimaleik fyrst og svo til skiptis. Það liðið sem hlýtur fleiri stig úr þessum þremur viðureignum hlýtur titilinn „Íslandsmeistarar liða“. Ef lið verða jöfn að stigum skal hærra pinnafall í fyrrgreindum þremur viðureignum ráða. Sjá nánar í reglugerð um Íslandsmót liða

Úrslitakeppni 1. deildar kvenna – 2 leikur

Önnur viðureignin í úrslitum 1. deildar kvenna á Íslandsmóti liða á milli KFR-Valkyrja og ÍR-TT fór fram í Egilshöllinni í kvöld. ÍR-TT vann viðureignina með 13 stigum á móti 7 hjá KFR-Valkyrjum og staðan er því þannig að ÍR-TT er með  25 stig á móti 15 stigum KFR-Valkyrja. Þriðja og síðasta viðureignin um Íslandsmeistaratitilinn og seinni heimaleikur deildarmeistaranna KFR-Valkyrja, fer fram í Egilshöllinni annaðkvöld, þriðjudaginn 30. apríl og hefst kl. 19:00.

Lið ÍR-TT byrjaði einnig betur í kvöld og vann 5 -1 í fyrsta leiknum með 657 pinnum á móti 632. KFR-Valkyrjur náðu að svara fyrir sig í öðrum leiknum og unnu hann 4 – 2 með 661 pinnum  á móti 651. Þriðji leikurinn var einnig jafn og fór 4 -2 þar sem ÍR-TT spilaði 736, en KFR-Valkyrjur 725 og samtals var ÍR-TT með 2.044 pinna og KFR-Valkyrjur með 2.018. Guðný Gunnarsdóttir ÍR-TT spilaði best allra í kvöld með 583 seríu, Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR-TT spilaði 561 og Dagný Edda Þórisdóttir KFR-Valkyrjum var með 560. Stöðuna í úrslitakeppninni er hægt að sjá hér

Úrslitakeppni 1. deildar karla og kvenna fer þannig fram að fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina komast í úrslitakeppni þar sem spilað er samkvæmt útsláttarfyrirkomulagi, það er að liðið sem er í efsta sæti deildarinnar keppir við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti keppir við liðið í 3. sæti. Leiknar skulu tvær viðureignir, heima og heiman, og fær hærra liðið heimaleik fyrst. Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar 2 viðureignir, ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða. Sigurvegarar úr þessum tveim viðureignum skulu leika þrjár viðureignir heima og heiman. Liðið sem varð hærra í deildarkeppninni skal eiga heimaleik fyrst og svo til skiptis. Það liðið sem hlýtur fleiri stig úr þessum þremur viðureignum hlýtur titilinn „Íslandsmeistarar liða“. Ef lið verða jöfn að stigum skal hærra pinnafall í fyrrgreindum þremur viðureignum ráða. Sjá nánar í reglugerð um Íslandsmót liða

KR-B Íslandsmeistarar í 2. deild karla

Lið KR-B tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í 2. deild karla með stórsigri á ÍR-Broskörlum 18,5 á móti 1,5 og endaði með 66,5 stig. Liðið tryggði sér jafnframt sæti í 1. deild karla á næsta keppnistímabili og því eiga þrjú KR lið keppnisrétt í 1. deildinni næsta vetur. Lið Þórs á Akureyri var þegar búið að tryggja sér sæti í 1. deildinni og endaði í 2. sæti deildarinnar með 65,5 stig einu stigi á eftir KR-B. ÍR-Broskarlar urðu í 3. sæti með 55,5 stig og 52,5 stig. Stöðuna í úrslitakeppninni má sjá hér

Úrslit leikja í úrslitakeppni 2. deildar karla eru eftirfarandi:
ÍR-Blikk vann Þór 17,5  – 2,5
KR-B vann Þór 12 – 8
ÍR-Broskarlar og Þór skildu jafnir 10 – 10
KFR-B og ÍR-Blikk skildu jafnir 10 – 10
ÍR-Blikk vann ÍR-Broskarla 7 – 13
Þór vann ÍR-Blikk 16 – 4
KR-B tapaði fyrir ÍR-Broskörlum 5 – 15
Þór vann KR-B 13 – 7
ÍR-Blikk tapaði fyrir ÍR-Broskörlum 2 – 18
Þór vann ÍR-Broskarla 16 – 4
KR-B vann ÍR-Blikk 14 – 6
ÍR-Broskarlar töpuðu fyrir KR-B 1,5 – 18,5

Lokastaðan í úrslitakeppni 2. deildar karla er því eftirfarandi
KR-B 66,5
Þór 65,5 stig
ÍR-Broskarlar 55,5 stig
ÍR-Blikk 52,5 stig

Úrslitakeppni 1. deildar karla – 1. leikur

Fyrsta viðureignin í úrslitum 1. deildar karla á Íslandsmóti liða á milli ÍR-KLS og ÍR-PLS fór fram í Egilshöllinni í gærkvöldi. Eftir jafna og spennuþrungna keppni er staðan þannig að ÍR-KLS er með 11 stig á móti 9 stigum ÍR-PLS . Önnur viðureignin og heimaleikur ÍR-PLS fer fram í Egilshöllinni í kvöld og hefst kl. 19:00.

Liðsmenn ÍR-KLS komu mjög ákveðnir til leiks og unnu ÍR-PLS 5 – 1 í fyrsta leiknum með 751 pinna á móti 727. ÍR-PLS svöruðu fyrir sig í öðrum leiknum og unnu hann 5 – 1 með 814 pinnum  á móti 804. Þriðji leikurinn var mjög spennandi og fór 3 – 3, ÍR-KLS spilaði 806 og ÍR-PLS 771. Samtals var ÍR-KLS með 2.361 pinna, en ÍR-PSL með 2.312. Hafþór Harðarson ÍR-PLS spilaði best allra með 694 seríu og Arnar Sæbergsson ÍR-KLS spilaði 671. Stöðuna í úrslitakeppninni er hægt að sjá hér

Úrslitakeppni 1. deildar karla og kvenna fer þannig fram að fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina komast í úrslitakeppni þar sem spilað er samkvæmt útsláttarfyrirkomulagi, það er að liðið sem er í efsta sæti deildarinnar keppir við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti keppir við liðið í 3. sæti. Leiknar skulu tvær viðureignir, heima og heiman, og fær hærra liðið heimaleik fyrst. Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar 2 viðureignir, ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða. Sigurvegarar úr þessum tveim viðureignum skulu leika þrjár viðureignir heima og heiman. Liðið sem varð hærra í deildarkeppninni skal eiga heimaleik fyrst og svo til skiptis. Það liðið sem hlýtur fleiri stig úr þessum þremur viðureignum hlýtur titilinn „Íslandsmeistarar liða“. Ef lið verða jöfn að stigum skal hærra pinnafall í fyrrgreindum þremur viðureignum ráða. Sjá nánar í reglugerð um Íslandsmót liða

Úrslitakeppni 1. deildar kvenna – 1. leikur

Fyrsta viðureignin í úrslitum 1. deildar kvenna á Íslandsmóti liða á milli KFR-Valkyrja og ÍR-TT fór fram í Egilshöllinni í gærkvöldi. Eftir jafna og spennandi keppni er staðan þannig að ÍR-TT er með 12 stig á móti 8 stigum KFR-Valkyrja. Önnur viðureignin og heimaleikur ÍR-TT fer fram í Egilshöllinni í kvöld og hefst kl. 19:00.

Lið ÍR-TT byrjaði betur í gærkvöldi og vann 5 -1 í fyrsta leiknum með 695 pinnum á móti 637. KFR-Valkyrjur náðu að svara fyrir sig í öðrum leiknum og unnu hann 4 – 2 með 709 pinnum  á móti 690. Þriðji leikurinn var enn jafnari og fór 3 – 3 þar sem ÍR-TT spilaði 734, en KFR-Valkyrjur 732 og samtals var ÍR-TT með 2.119 pinna og KFR-Valkyrjur 2.073. Guðný Gunnarsdóttir ÍR-TT spilaði best í gær og var með 590 seríu, Elín Óskarsdóttir KFR-Valkyrjum spilaði 569 og Dagný Edda Þórisdóttir var með 568. Stöðuna í úrslitakeppninni er hægt að sjá hér

Úrslitakeppni 1. deildar karla og kvenna fer þannig fram að fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina komast í úrslitakeppni þar sem spilað er samkvæmt útsláttarfyrirkomulagi, það er að liðið sem er í efsta sæti deildarinnar keppir við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti keppir við liðið í 3. sæti. Leiknar skulu tvær viðureignir, heima og heiman, og fær hærra liðið heimaleik fyrst. Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar 2 viðureignir, ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða. Sigurvegarar úr þessum tveim viðureignum skulu leika þrjár viðureignir heima og heiman. Liðið sem varð hærra í deildarkeppninni skal eiga heimaleik fyrst og svo til skiptis. Það liðið sem hlýtur fleiri stig úr þessum þremur viðureignum hlýtur titilinn „Íslandsmeistarar liða“. Ef lið verða jöfn að stigum skal hærra pinnafall í fyrrgreindum þremur viðureignum ráða. Sjá nánar í reglugerð um Íslandsmót liða

Úrslitakeppni 2. deildar karla lýkur í kvöld

ÍR-Broskarlar, Þór Akureyri, KR-B og ÍR-Blikk keppa nú í úrslitum 2. deildar karla um tvö laus sæti í 1. deild að ári og lýkur úrslitakeppninni í kvöld 29. apríl, sjá nánar í dagskrá og dagskrá úrslitakeppni 2. deildar karla.

Þór Akureyri hefur nú þegar tryggt sér sæti í 1. deild karla að ári og í kvöld fer fram í Öskjuhlíðinni síðasti leikur úrslitakeppninnar sem er einnig hreinn úrslitaleikur milli ÍR-Broskarla og KR-B hvort liðið fylgir þeim upp um deild.

Fjórir leikir fóru fram um helgina. Á laugardaginn fóru fram tveir leikir Þór Akureyri vann KR-B 13 -7 á heimavelli á Akureyri og ÍR-Blikk tapaði stórt á móti ÍR-Broskörlum 2 – 18 í Öskjuhlíðinni Í gær tók Þór á móti ÍR-Broskörlum og vann 16 – 4 og KR-B vann ÍR-Blikk 14 – 6 í heimaleik í Öskjuhlíð. Stöðuna í úrslitakeppninni má sjá hér

Á myndinni má sjá ÍR-Broskarla og Þór Akureyri í Keilunni á Akureyri.

Úrslit leikja í úrslitakeppni 2. deildar karla eru eftirfarandi:
ÍR-Blikk vann Þór 17,5  – 2,5
KR-B vann Þór 12 – 8
ÍR-Broskarlar og Þór skildu jafnir 10 – 10
KFR-B og ÍR-Blikk skildu jafnir 10 – 10
ÍR-Blikk vann ÍR-Broskarla 7 – 13
Þór vann ÍR-Blikk 16 – 4
KR-B tapaði fyrir ÍR-Broskörlum 5 – 15
Þór vann KR-B 13 – 7
ÍR-Blikk tapaði fyrir ÍR-Broskörlum 2 – 18
Þór vann ÍR-Broskarla 16 – 4
KR-B vann ÍR-Blikk 14 – 6

Staðan er því eftirfarandi
Eftir 6 leiki Þór 65,5 stig
Eftir 5 leiki ÍR-Broskarlar 54 stig
Eftir 6 leiki ÍR-Blikk 52,5 stig
Eftir 5 leiki KR-B 48 stig

Mótanefnd KLÍ hefur tilkynnt dagskrá og brautaskipan í úrslitakeppni 2. deildar karla á Íslandsmóti liða sem fer fram dagana 19. – 29. apríl n.k. Til úrslita keppa tvö efstu liðin úr hvorum riðli, ÍR-Broskarlar, Þór Akureyri, KR-B og ÍR-Blikk. Spiluð er tvöföld umferð, heima og heiman, með sömu stigagjöf og í forkeppninni og tvö efstu liðin keppa í 1. deild að ári. Sjá nánar í reglugerð um Íslandsmót liða

Staðan í úrslitakeppni 2. deildar karla

ÍR-Broskarlar, Þór Akureyri, KR-B og ÍR-Blikk keppa nú í úrslitum 2. deildar karla um tvö laus sæti í 1. deild að ári og fer úrslitakeppnin fram dagana 19. – 29. apríl, sjá nánar í dagskrá og dagskrá úrslitakeppni 2. deildar karla.

 Tveir leikir fóru fram í dag. Þór vann ÍR – Blikk 16 – 4 á heimavelli á Akureyri og KR-B mátti sætta sig við 5 – 15 tap á móti ÍR-Broskörlum í heimaleik í Öskjuhlíð.

Stöðuna í úrslitakeppninni má sjá hér

Úrslit leikja í úrslitakeppni 2. deildar karla eru eftirfarandi:
ÍR-Blikk vann Þór 17,5  – 2,5
KR-B vann Þór 12 – 8
ÍR-Broskarlar og Þór skildu jafnir 10 – 10
KFR-B og ÍR-Blikk skildu jafnir 10 – 10
ÍR-Blikk vann ÍR-Broskarla 7 – 13
Þór vann ÍR-Blikk 16 – 4
KR-B tapaði fyrir ÍR-Broskörlum 5 – 15

Staðan er því eftirfarandi
Eftir 4 leiki ÍR-Blikk 44,5 stig
Eftir 4 leiki Þór 36,5 stig
Eftir 3 leiki ÍR-Broskarlar 32 stig
Eftir 3 leiki KR-B 27 stig

Mótanefnd KLÍ hefur tilkynnt dagskrá og brautaskipan í úrslitakeppni 2. deildar karla á Íslandsmóti liða sem fer fram dagana 19. – 29. apríl n.k. Til úrslita keppa tvö efstu liðin úr hvorum riðli, ÍR-Broskarlar, Þór Akureyri, KR-B og ÍR-Blikk. Spiluð er tvöföld umferð, heima og heiman, með sömu stigagjöf og í forkeppninni og tvö efstu liðin keppa í 1. deild að ári. Sjá nánar í reglugerð um Íslandsmót liða

Undanúrslit 1. deildar karla – Seinni leikur

Það verða deildar-, Íslands og Bikarmeistaranir ÍR-KLS sem mæta ÍR-PLS í úrslitum 1. deildar karla á Íslandsmóti liða sem hefjast sunnudaginn 28. apríl n.k. og fara fram á heimavelli liðanna í Egilshöllinni.

Seinni leikir undanúrslitanna í karlaflokki fóru fram í Keilusalnum á Akranesi í kvöld og gærkvöldi. Í gær fór fram leikur ÍR-KLS og ÍA-W og náðu Skagamenn fram nokkrum hefndum fyrir stórt tap í fyrri leik liðanna og vann leikinn 11 stig á móti 9. ÍR-KLS vann hins vegar viðureignina með samtals 27 stigum á móti 13. ÍR-PLS fór upp á Skaga í kvöld og vann þar stórsigur á ÍA, eða með 17 stig á móti 3 og ÍR-PLS vann því viðureignina með samtals 31 stigi á móti 9.

Stöðuna í úrslitakeppninni má sjá hér

Úrslitakeppni 1. deildar karla og kvenna fer þannig fram að fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina komast í úrslitakeppni þar sem spilað er samkvæmt útsláttarfyrirkomulagi, það er að liðið sem er í efsta sæti deildarinnar keppir við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti keppir við liðið í 3. sæti. Leiknar skulu tvær viðureignir, heima og heiman, og fær hærra liðið heimaleik fyrst. Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar 2 viðureignir, ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða. Sigurvegarar úr þessum tveim viðureignum skulu leika þrjár viðureignir heima og heiman. Liðið sem varð hærra í deildarkeppninni skal eiga heimaleik fyrst og svo til skiptis. Það liðið sem hlýtur fleiri stig úr þessum þremur viðureignum hlýtur titilinn „Íslandsmeistarar liða“. Ef lið verða jöfn að stigum skal hærra pinnafall í fyrrgreindum þremur viðureignum ráða. Sjá nánar í reglugerð um Íslandsmót liða

Undanúrslit 1. deildar kvenna – Seinni leikur

Það verða deildarmeistaranir KFR-Valkyrjur sem mæta Íslands- og bikarmeisturunum úr ÍR-TT í úrslitum 1. deildar kvenna á Íslandsmóti liða sem hefjast sunnudaginn 28. apríl n.k. og fara fram á heimavelli liðanna í Egilshöllinni.

Seinni leikur undanúrslitanna fór fram í kvöld.  ÍR-TT náði að svara fyrir slæmt tap í gær og vann KFR-Afturgöngurnar 15 – 5 á útivelli í Öskjuhlíðinni og lokastaðan í viðureigninni því 22 – 18. KFR-Valkyrjur unnu ÍR-Buff aftur í kvöld með 11 stigum gegn og samanlagt  26 – 14.