Meistaramót KFR verður haldið í Keiluhöllinni Öskjuhlíð sunnudaginn 17. nóvember. kl. 09:00.
Nánar hér.
Meistaramót KFR verður haldið í Keiluhöllinni Öskjuhlíð sunnudaginn 17. nóvember. kl. 09:00.
Nánar hér.
Sigurlaug Jakobsdóttir og Hafþór Harðarson, bæði úr ÍR tryggðu sér í kvöld Bikarmeistaratitla einstaklinga í keilu í Sjóvá mótinu sem fór fram í Keiluhöllinni í Egilshöll. Þetta var í annað sinn sem Sigurlaug tryggir sér þennan titil, en hún vann einnig árið 2009 og varð í 2. sæti í fyrra. Hafþór vann þennan titil annað árið í röð og í fjórða sinn alls, en hann vann einnig tvö ár í röð árin 2006 og 2007.
Bikarkeppni einstaklinga var að þessu sinni haldin undir merkjum Sjóvá í 25. sinn, sjá yfirlit yfir Bikarmeistara Sjóvá frá upphafi.
Í 2. sæti voru þau Bergþóra Rós Ólafsdóttir ÍR og Kristján Þórðarson KR. Sirrý Hrönn Haraldsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir bæði hæsta leik 232 og hæstu seríu kvenna í mótinu 588, sem hún spilaði í 8 manna úrslitum kvenna. Hafþór og Sigurbjörn Stefán Vilhjálmsson KR áttu hæstu leik karla 268 og Hafþór átti hæstu seríu í karlaflokki 727, sem þeir spiluðu í 16 manna úrslitunum karla.
Á myndinni frá vinstri Sirrý Hrönn Haraldsdóttir, Bergþóra Rós Ólafsdóttir, Sigurlaug Jakobsdóttir, Hafþór Harðarson, Kristján Þórðarson og Sigurbjörn Stefán Vilhjálmsson.
Margir leikmenn áttu góða spretti og leikgleðin var í fyrirrúmi þegar keppni í 2. umferð Íslandsmóts unglingaliða fór fram í Egilshöllinni í gær, laugardaginn 9. nóvember. Jóhanna Guðjónsdóttir í ÍA-1 spilaði best allra með og átti hæsta leik 201. Staðan er nú þannig að lið ÍA 1 hefur tekið forystu og er í 1. sæti með 14 stig, ÍR 1 er í 2. sæti með 11 stig, KFR 1 er í 3. sæti með 10 stig. Sjá stöðuna og skor umferðar
Á Íslandsmóti unglingaliða eru spilaðar 5. umferðir á keppnistímabilinu og síðan keppa fjögur efstu liðin til úrslita. Keppt er í þriggja manna liðum og þátttökurétt hafa unglingar sem eru félagar í keilufélagi og eru í 5. – 10. bekk grunnskóla. Að þessu sinni eru fimm lið skráð til leiks, tvö lið frá ÍA, tvö lið frá ÍR og eitt lið frá KFR. Í hverri umferð er spiluð einföld umferð allir við alla, eða 4 leikir. Sjá nánar um Íslandsmót unglingaliða og dagskrá unglingamóta í vetur.
Birt hefur verið nýtt allsherjarmeðaltal miðað við 31. október 2013
Robert Andersson er efstur á listanum, en af þeim sem eru virkir spilarar hér er Hafþór Harðarson ÍR með hæsta meðaltalið eða 213 pinna að meðaltali í leik. Magnús Magnússon ÍR kemur næstur með 211 og Skúli Freyr Sigurðsson ÍA er þriðji með 205 eins og Arnar Sæbergsson ÍR.
Ástrós Pétursdóttir ÍR er með hæsta meðaltal kvenna 191 pinna að meðaltali í leik. Næstar á eftir henni koma Dagný Edda Þórisdóttir KFR með 189 og Guðný Gunnarsdóttir ÍR með 183.
Til meðaltals teljast síðustu 100 leikir fyrir mánaðamót fyrir útreikning meðaltals. Einnig eru birt mánaðar-, vetrar- og ársmeðaltöl keppanda.. Vetrarmeðaltal er reiknað útfrá leikjum á tímabilinu 1. júní til 31. maí. Þá kemur einnig fram hve langt er síðan síðasti leikur leikmanns sem taldi til meðaltals var leikinn, í dálkinum „Óvirkir mán.“ Hægt er að skoða þróun meðaltals og hvaða leikir teljast til síðustu 100 leikja undir Tölfræði og leikmenn
Keppni í 2. umferð Deildarbikars liða fór fram þriðjudaginn 5. nóvember s.l.
Staðan að lokinni 2. umferð er þannig að ÍR-TT er í efsta sæti A-riðils með 20 stig eins og ÍR-PLS. ÍR-L kemur síðan í 3. sæti með 16 stig og KR-A er í 4. sæti með 14 stig. Í B-riðli er KRB í efsta sæti með 14 stig eins og KFR-Afturgöngurnar sem eru í 2. sæti. Síðan kemur ÍA í 3. sæti með 12 stig eins og ÍR-Buff sem er í 4. sæti. Í C riðli er ÍR-KLS í efsta sæti með 14 stig eins og ÍA-W sem er í 2. sæti. Í 3. sæti er KR-C með 10 stig eins og KR-D í 4. sæti.
Alls keppa 19 lið í Deildarbikar á þessu keppnistímabili og skiptast þau í þrjá riðla, 7 lið í A riðli og 6 lið í B og C riðlum. Sjá nánar upplýsingar um leikdaga, riðlaskiptingu og leiki í hverri umferð.
Olíuburður í Deildarbikar liða er Middle Road 39 fet
Annar leikdagur á Íslandsmóti félaga fór fram í Keiluhöllinni Egilshöll mánudaginn 4. nóvember s.l.
Staðan er nú þannig að ÍR-karlar hafa tekið forystuna í Opnum flokki með 92 stig eftir 13 leiki, KFR-konur eru í 2. sæti með 82 stig eftir 13 leiki, KR-karlar eru í 3. sæti með 76 stig eftir 12 leiki og ÍR-konur eru í 4. sæti með 71,5 stig eftir 12 leiki. ÍR-konur eru í efsta sætinu í kvennaflokki með 43 stig eftir 6 leiki, KFR-konur eru í 2. sæti með 36 stig eftir 5 leiki, ÍA-konur eru í 3. sæti með 6 stig eftir 4 leiki og ÍFH-konur eru í 4. sæti með 4 stig eftir 5 leiki. Sjá stöðuna í Íslandsmóti félaga
Arnar Davíð Jónsson varð í 6. sæti í úrslitakeppninni (Masters) á Norðurlandamóti ungmenna 23 ára og yngri sem fór fram í morgun. Arnar Davíð vann 3 leiki af 7 og fékk 90 bónusstig og endaði með samtals 1.479 pinna. Svíinn Jesper Svenson hélt sigurgöngu sinni áfram, vann örugglega alla sína leiki, fékk 210 bónusstig og endaði með 2.027. Finninn Tony Ranta varð í 2. sæti með 1.634 eins og Daninn Carsten W. Hansen sem tapaði bráðabananum og endaði í 3. sæti. Sjá stöðuna í úrslitakeppni pilta
Hjá stúlkunum var þrefaldur sænskur sigur. Lisa Björklund varð í 1. sæti með 1.591, 8 pinnum ofar en Jenny Wegner í 2. sæti með 1.583 og systir hennar Cajsa Wegner varð í 3. sæti með 1.480. Sjá stöðuna í úrslitakeppni stúlkna.
Arnar Davíð Jónsson varð í 8. sæti í heildarkeppninni (All-Event) á Norðurlandamóti ungmenna 23 ára og yngri, með samtals 3.696 pinna eða 205,33 að meðaltali í leik í 18 leikjum. Arnar Davíð náði því að tryggja sér sæti í úrslitakeppni 8 efstu keppendanna (Masters) sem fer fram á morgun. Í úrslitakeppninni keppa allir við alla (Round Robin), byrja með 0 stig og veitt eru bónusstig fyrir unnin leik. Úrslitakeppni hefst kl. 10:00 að staðartíma, eða kl. 9:00 að íslenskum tíma. Fylgist með á heimasíðu mótsins, beinni útsendingu og skorinu
Arnar Davíð Jónsson varð eins og áður segir í 8. sæti í heildarkeppninni (All-Event) með 3.696 pinna eða 205,33 að meðaltali í leik í 18 leikjum, Skúli Freyr Sigurðsson varð í 15. sæti með 3.503 pinna eða 194,61 að meðaltali í leik, Einar Sigurður Sigurðsson varð í 18. sæti með 3.280 pinna eða 182,22 að meðaltali og Guðlaugur Valgeirsson endaði í 20. sæti með 3.223 eða 179,06 að meðaltali. Sjá stöðuna í heildarkeppni pilta
Ástrós Pétursdóttir varð efst íslensku stúlknanna og endaði í 13. sæti með 3.300 pinna eða 183,33 að meðaltali í 18 leikjum. Katrín Fjóla Bragadóttir endaði í 18. sæti með 3.027 pinna eða 168,17 að meðaltali, Hafdís Pála Jónasdóttir varð í 19. sæti með 2.975 pinna eða 165,28 að meðaltali og Bergþóra Rós Ólafsdóttir endaði í 20. sæti með 2.638 pinna eða 146,56 að meðaltali. Sjá stöðuna í heildarkeppni stúlkna
Fylgist með á heimasíðu mótsins, beinni útsendingu og skorinu
Lokastaðan varð þannig í heildarkeppninni (All-Events) að Jesper Svensson Svíþjóð varð langefstur hjá piltunum með samtals 4.212 pinna eða 234 að meðaltali í leik í 18 leikjum. Daninn Carsten W. Hansen varð í 2. sæti með 3.812 og Svíinn Magnus Johnson varð í 3. sæti með 3.786. Næstir á eftir þeim og með sæti í úrslitum voru Markus Jansson Svíþjóð, Sami Lampo Finnlandi, Tony Ranta Finnlandi, Mik Stampe Danmörku og Arnar Davíð Jónsson Íslandi. Skúli Freyr Sigurðsson var í 15. sæti, Einar Sigurður Sigurðsson varð í 18. sæti og Guðlaugur Valgeirsson endaði í 20. sæti. Sjá stöðuna í heildarkeppni pilta
Lokastaðan varð þannig í heildarkeppninni (All-Events) að Andrea E. Hansen Noregi varð efst hjá stúlkunum með samtals 3.795 pinna eða 210,83 að meðaltali í leik í 18 leikjum. Finninn Sanna Pasanen varð í 2. sæti með 3.718 og Daninn Pernille W. Rasmussen varð í 3. sæti með 3.708. Næstar á eftir þeim og með sæti í úrslitum voru Jenny Wegner Svíþjóð, Lisa Björklund Svíþjóð, Cajsa Wegner Svíþjóð, Jonna Jokinen Finnlandi og Roosa Lundén Finnlandi. Sjá stöðuna í heildarkeppni stúlkna
Í dag fór fram tvímenningskeppni á Norðurlandamóti ungmenna sem nú fer fram í Malmö í Svíþjóð.
Jesper Svensson og Markus Jansson Svíþjóð tryggðu sér gullverðlaunin í piltaflokki með 2.623 pinna, Anders Lousdal og Carsten W. Hansen Danmörku urðu í 2. sæti með 2.540 og Sami Lampo og Samu Valaranta Finnlandi urðu í 3. sæti með 2.519 pinna. Skúli Freyr Sigurðsson og Arnar Davíð Jónsson urðu í 8. sæti með 2.40 pinna og Guðlaugur Valgeirsson og Einar Sigurður Sigurðsson enduðu í 9. sæti með 2.220. Sjá úrslit tvímenningskeppni pilta
Pernille W. Rasmussen og Randi Christensen Danmörku sigruðu í stúlknaflokki með 2.514 pinna, Lisa Björklund og Jenny Wegner Svíþjóð urðu í 2. sæti með 2.398 pinna og Roosa Lundén og Sanna Pasanen Finnlandi urðu í 3. sæti með 2.390. Katrín Fjóla Bragadóttir og Ástrós Pétursdóttir urðu í 9. sæti með 2.097 pinna og Hafdís Pála Jónasdóttir og Bergþóra Rós Ólafsdóttir enduðu í 10. sæti með 1.835 pinna. Sjá úrslit tvímenningsskeppni stúlkna
Íslensku liðin enduðu bæði í 5. sæti í liðakeppninni á Norðurlandamóti 23 ára og yngri eftir seinni helming liðakeppninnar sem fram fór í morgun.
Svíar sigruðu í piltaflokki með 5.085 pinna, Finnar gáfu eftir á endasprettinum og urðu í 2. sæti með 4.909, Danir héldu 3. sætinu með 4.830, Norðmenn voru í 4. sæti með 4.472 og Ísland varð í 5. sæti með 4.381. Sjá stöðuna í liðakeppni pilta
Dæmið snerist hins vegar við í stúlknaflokki þar sem Finnar tryggðu sér sigurinn með 4.809 pinna, Svíar urðu í 2. sæti með 4.772 pinna, Danir komust upp í 3. sætið með 4.428 pinna, Norðmenn urðu í 4. sæti með 4.326 pinna og Ísland endaði í 5. sæti með 4.012 pinna. Sjá stöðuna í liðakeppni stúlkna